top of page

Opnun: Þybba á þurru landi í Gallerí Göng

508A4884.JPG

fimmtudagur, 26. október 2023

Opnun: Þybba á þurru landi í Gallerí Göng

Verið velkomin á opnun sýngar Rutar Bjarnadóttur í Gallerí Göngum 28. október kl 14-16

Verk Rutar eru alltaf á einn eða annan hátt unnin út frá eigin upplifunum. Í þetta sinn er myndefnið hið kvenlega form sem er breytingum háð gegnum lífið. Aukakílóin læðast að eitt af öðru og mynda annað form sem kallar á nýsköpun, meðal annars lagfæringar á fatnaði viðkomandi.

Blúndumunstrið, sem er gegnumgangandi í verkum Rutar, er sprottið úr áralangri reynslu hennar af að vinna með textíl. Biða, þýðir keald eða dufl og getur líka þýtt “jafnbola kvenmaður”. Þybba, þýðir fríholt eða hnellin. Tunnan, er gömul og ryðguð. Byttan, er umvafin vínrauðu ölduróti.

Rut Bjarnadóttir (1952) starfar nú og býr á Hólmavík, Ísland. Rut vinnur með áferð og yfirborð með mismunandi tækni. Rut útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands, Reykjavík (IS) í textíllist og hönnun árið 1987. Valdar einkasýningar: Íslenska menningarmiðstöðin (Jónshús), Kaupmannahöfn (DK), Sjöbo Konsthall, Sjöbo (SE). Gallerí Orås (SE). Fyrri samsýningar í úrvali: Malmö Open Studios, ADDO, Malmö (SE). Seðlabanki Íslands (IS), Lista- og arkitektúrskólinn, Helsinki (FI).

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page