top of page

Opnar vinnustofur: World Art Day

508A4884.JPG

fimmtudagur, 9. apríl 2026

Opnar vinnustofur: World Art Day

Word Art Day er haldinn árlega hátíðlegur 15. apríl um allan heim.

UNESCO og IAA stofnu World Art Day þann 15. apríl árið 2019 á fæðingardegi Leonardos da Vinci. Markmiðið með deginum er að heiðra mikilvægi listar í mótun samfélaga, menningar og mannlegrar tjáningar. IAA The International Association of Art eru alþjóðasamtök myndlistarmanna, sem SÍM er aðili að.

SÍM hefur staðið fyrir ýmsum viðburðum á þessum degi undanfarin ár. Listamenn verða með opnar vinnustofur milli kl. 17 og 19 á þessum degi. Áhersla dagsins er að efla samfélagið gegnum listina með því að auka sýnileika listamanna og er ekkert sýnilegra en opnar vinnustofur.

Þetta er í fjórða sinn sem SÍM er þátttakandi í þessum heimsviðburði ásamt öðrum þjóðum sem taka þátt innan IAA - International Art Association og UNESCO. Við hvetjum alla til að taka þátt í afmælisveislunni með því að hitta listamenn og njóta listarinnar.

Í eftirfarandi vinnustofuhúsum verða opin hús milli 17 og 19:
Auðbrekka 1, Kópavogi
Digranesvegur 5, Kópavogi
Hólmaslóð 4, RVK
Korpúlfsstaðir Thorsvegi 1, Reykjavík

Jafnframt verður Helgi Þorgils Friðjónsson til viðtals um sýningu sína Sjóndeildarhringur á Hlöðuloftinu, Korpúlfsstöðum milli 17 og 19

Viðtöl við alþjóðlega gestalistamenn SÍM verða aðgengileg á skjá á Kaffistofu Korpúlfsstaða

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page