Opnar vinnustofur: World Art Day

miðvikudagur, 15. apríl 2026
Opnar vinnustofur: World Art Day
Listamenn bjóða öllum velkomin á vinnustofur í dag. Hægt verður að heimsækja listamenn heim, fræðast um störf þeirra og skoða verk í vinnslu.
World Art Day var stofnaður þann 15. apríl 2019 af UNESCO og The International Artist Association (IAA) á fæðingardegi Leonardos da Vinci. Markmiðið með deginum er að heiðra mikilvægi listar í mótun samfélaga, menningar og tjáningu. IAA The International Association of Art eru alþjóðasamtök myndlistarmanna, sem SÍM er aðili að.
Listamenn verða með opnar vinnustofur milli kl. 17 og 19 á þessum degi. Áhersla dagsins er að efla samfélagið gegnum listina með því að auka sýnileika listamanna og er ekkert sýnilegra en opnar vinnustofur.
Þetta er í fjórða sinn sem SÍM er þátttakandi á þessum degi ásamt öðrum þjóðum sem taka þátt innan IAA og UNESCO. Við hvetjum alla til að taka þátt í afmælisveislunni með því að hitta listamenn og njóta listarinnar.
Í eftirfarandi vinnustofuhúsum verða opin hús milli 17 og 19:
Auðbrekka 1, Kópavogi
Digranesvegur 5, Kópavogi
Hólmaslóð 4, RVK
Korpúlfsstaðir Thorsvegi 1, Reykjavík
Jafnframt verður Helgi Þorgils Friðjónsson til viðtals um sýningu sína Sjóndeildarhringur á Hlöðuloftinu, Korpúlfsstöðum milli 14 og 17
Viðtöl við alþjóðlega gestalistamenn SÍM verða aðgengileg á skjá á Kaffistofu Korpúlfsstað
