Opið kall fyrir Hugarflug listrannsóknaráðstefnu LHÍ

miðvikudagur, 23. apríl 2025
Opið kall fyrir Hugarflug listrannsóknaráðstefnu LHÍ
Listaháskóli Íslands býður rannsakendum, listamönnum og hönnuðum að senda inn tillögur að framlögum fyrir Hugarflug 2025 – árlega rannsóknaráðstefnu LHÍ, sem haldin verður þann 13. september 2025 í Hamri, Stakkahlíð 1, Reykjavík.
Þema ráðstefnunnar í ár er: „Óstöðug kerfi“. Við leitum eftir framlögum sem fást við óstöðugleika í ólíkum kerfum – frá tæknilegum nýjungum eins og gervigreind og gagnvirkum kerfum, yfir í málefni tengd pólitík, samfélagi og umhverfi. Við beinum sjónum að því hvernig óstöðugleikinn nýtist sem tól til að skapa nýja möguleika, en líka hvernig hann ýtir undir óróa og breytingar í samfélaginu og háskólakerfinu.
Hægt er að lesa um ráðstefnuna og senda inn tillögu hér: https://www.lhi.is/rannsoknir/hugarflug/
Hugarflug, árleg rannsóknarráðstefna Listaháskóla Íslands, er vettvangur fyrir opna, faglega og gagnrýna umræðu um listir, hönnun og arkitektúr.