Opið kall - forval: Samkeppni um listaverk í almannarými á Orkureit

fimmtudagur, 12. júní 2025
Opið kall - forval: Samkeppni um listaverk í almannarými á Orkureit
Myndlistarmönnum er boðið að taka þátt í forvali að lokaðri samkeppni um listaverk í almannarými á Orkureit í Reykjavík. Reykjavíkurborg og lóðarhafar sameinast um listsköpun á svæðinu til að auka gæði og gott umhverfi í borginni og er heildarfjárhæð sem um ræðir allt að þrjátíu og tvær milljónir króna.
Orkureitur afmarkast af Suðurlandsbraut, Grensásvegi, Ármúla og Dalsmúla og er samkeppnissvæðið sjálfar byggingarnar, inngarðar þeirra og nánasta umhverfi. Sjá nánari upplýsingar um uppbygginguna hér: https://orkureiturinn.is/
Listasafn Reykjavíkur hefur umsjón með samkeppninni sem fer fram eftir samkeppnisreglum Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM), þ.e. lokuð samkeppni með opnu forvali. Forvalsnefnd mun velja þrjá til fimm myndlistarmenn úr innsendum umsóknum til þátttöku í seinni hluta samkeppninnar.
Forval:
Þau sem óska eftir því að taka þátt í forvali vegna samkeppninnar sendi eitt PDF skjal merkt með nafni þess sem sækir um og nafni svæðisins „Orkureitur“. Skjalið skal innihalda eftirtaldar upplýsingar:
- Ferilskrá með greinargóðum upplýsingum um listferil, nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og netfang.
- 5 ljósmyndir af fyrri verkum
- Texti: Heimilt er að senda inn stuttan texta þar sem fjallað er um reynslu, hæfni og áhugasvið umsækjanda og forsendur til að vinna verk í almannarými (hámark 200 orð). Ef að verk umsækjanda eru nú þegar í almannarými skal taka það fram.
Hámarksstærð PDF skjals er 10 MB.
Verkefnastjóri staðfestir móttöku umsókna og að þær séu í samræmi við ofantaldar kröfur.
Umsóknum um þátttöku í forvali skal aðeins skilað rafrænt og senda á netfangið:
listaverk.uppbygging@reykjavik.is
Umsóknarfrestur er til og með 22. júní 2025.