top of page

Opið kall: Vinnustofudvöl í Clermont Ferrand

508A4884.JPG

fimmtudagur, 26. júní 2025

Opið kall: Vinnustofudvöl í Clermont Ferrand

Auglýst er eftir umsóknum um vinnustofudvöl hjá Artistes en résidence í Frakklandi. Listamenn af öllum þjóðernum, með búsetu á Íslandi geta sótt um. Um er að ræða 6 vikna vinnustofudvöl hjá Artistes én Résidence í Clermond Ferrand, Frakklandi, með gistiaðstöðu, aðgang að vinnustofu, styrk fyrir uppihaldi og faglegum stuðningi frá starfsmönnum AR. Nýlistasafnið leggur listamanninum lið við að sækja um ferðastyrki ef þess er þörf.

Frestur til að sækja um er 10. ágúst 2025 klukkan 23:59 á íslenskum tíma.

Sótt er um í gegnum heimasíðu Artistes en Résidence með því að smella hér. Athugið að eingöngu listamenn með búsetu á Íslandi geta sótt um.

Dvalartími
Áætlaður dvalartími listamanns frá Íslandi í Clermont-Ferrand er frá 19.01. til 2.03.2026.

Vinnustofudvölin
Nýlistasafnið og Artistes en résidence (Clermont-Ferrand, Frakklandi) bjóða upp á skiptivist fyrir tvo listamenn, einn sem býr og starfar á Íslandi og einn í Auvergne-Rhône-Alpes-héraði í Frakklandi. Þetta ákall er eingöngu ætlað þeim listamönnum sem búa á Íslandi.

Listamaðurinn sem valinn er mun dvelja í sex vikur í Clermond Ferrand og hljóta styrk fyrir uppihaldi að upphæð 2250€, fá aðgang að vinnustofu og sérherbergi í fullbúinni íbúð sem deilt er með tveimur öðrum íbúum. Teymi Artistes en résidence verður listamanninum innan handar.

Verkefnið er unnið í samstarfi við franska sendiráðinu á Íslandi,Alliance Française de Reykjavík, Samband Íslenskra myndlistarmanna, með stuðningi frá Ardian.

Nánar á https://www.nylo.is/frettir/opid-fyrir-umsoknir-vinnustofudvol-2026

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page