top of page
Kjarvalsstofa París

fimmtudagur, 15. janúar 2026
Kjarvalsstofa París
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um dvöl í Kjarvalsstofu í París fyrir tímabilið maí 2026 til apríl 2027.
Kjarvalsstofa er stúdíóíbúð / vinnustofa í miðborg Parísar, skammt frá Notre Dame kirkjunni, og í umsjá Reykjavíkurborgar og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. Rýmið er 40 fm og hluti af alþjóðlegu listamannamiðstöðinni Cité International des arts, sem hýsir yfir 300 listamenn víðs vegar að úr heiminum á hverju ári.
Í umsókn skal tilgreina markmið með dvölinni, hvaða verkefni umsækjandi hyggst vinna að, og hvort það hafi sérstök tengsl við París eða Frakkland í formi tengslamyndunar eða rannsókna.
Opið er fyrir umsóknir til og með 31. janúar 2026 á Mínum síðum Reykjavíkurborgar.
bottom of page


