top of page

OPIÐ KALL: Gestavinnustofa Skaftfells 2026

508A4884.JPG

fimmtudagur, 8. maí 2025

OPIÐ KALL: Gestavinnustofa Skaftfells 2026

Auglýst eftir umsóknum um gestavinnustofu Skaftfells 2026. Gestavinnustofan er fyrir listamenn sem starfa í mismunandi miðlum og hentar einstaklingum eða hópum með allt að þrem listamönnum.

Tímabil: janúar – júní 2026

Umsóknarfrestur: 31.maí 2025

Skaftfell Listamiðstöð býður upp á alþjóðlega sjálfstýrða gestavinnustofu á Seyðisfirði. Afskekkt umhverfi veitir listamönnum tækifæri til að vinna í tiltölulegri einangrun á stað sem einnig er heimili alþjóðlegs samfélags starfandi listamanna. Gestavinnustofan býður upp á rými fyrir íhugun, sköpun og samvinnu og er tilvalið fyrir listrænar rannsóknir og tilraunir.

Umsókn: https://skaftfell.is/residency-program/

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page