top of page

Opið fyrir umsóknir: vinnustofudvöl í Künstlerhaus Bethanien

508A4884.JPG

föstudagur, 16. október 2026

Opið fyrir umsóknir: vinnustofudvöl í Künstlerhaus Bethanien

Umsóknarfrestur fyrir vinnustofudvöl í Künstlerhaus Bethanien er 21. október

Myndlistarmiðstöð auglýsir eftir umsóknum um árslanga vinnustofudvöl í Künstlerhaus Bethanien, Berlín, frá íslensku myndlistarfólki og myndlistarfólki sem hefur sterka tengingu við íslenskt listalíf. Dvalartímabil er frá maí 2027 – apríl 2028.

Künstlerhaus Bethanien var stofnað árið 1974, og er ein rótgrónasta og virtasta stofnun Þýskalands á þessu sviði. Að jafnaði starfa um 25 listamenn víðsvegar að úr heiminum við miðstöðina, sem býður upp á alþjóðlegt tengslanet og samstarf innan samtímamyndlistar.

Dvölin veitir listamönnum sem þar dvelja aðgengi að öflugu, alþjóðlegu tengslaneti; sýningarstjórum, safnafólki, blaðamönnum og öðrum sem starfa innan geirans. Auk þess heldur stofnunin utan um sýningarhald, útgáfu og ýmsa viðburði fyrir listamennina sem þar dvelja. Á meðan vinnustofudvöl stendur heldur hver listamaður einkasýningu á vegum Künstlerhaus Bethanien.

Boðið er upp á einkavinnustofu sem er 40 m² að stærð og fullan aðgang að verkstæðum og bókasafni. Listamaður hefur kost á því að búa á vinnustofunni óski hann þess, en þar er til staðar eldhúskrókur og rúm.

Vinnustofudvölin er fjármögnuð með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu og Viljanda minningarsjóði.

https://www.icelandicartcenter.is/is/frettir/opid-fyrir-umsoknir:-vinnustofudvol-i-kunstlerhaus-bethanien

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page