top of page

Opið fyrir umsóknir | D-salur 2025

508A4884.JPG

fimmtudagur, 5. september 2024

Opið fyrir umsóknir | D-salur 2025

Listasafn Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum listamanna til að sýna í D-sal Hafnarhússins árið 2025.

Sýningarröðin hefur það að markmiði að beina sjónum að listamönnum með skamman feril að baki sem hafa þegar haft mótandi áhrif á íslenska myndlistarsenu.

Sýningarröðin í D-sal Hafnarhússins hóf göngu sína árið 2007. Fimmtugustu sýningunni var fagnað á síðasta ári með samsýningunni D-vítamín. Í D-sal gefst listamönnum tækifæri til að kynnast af eigin raun þeim innviðum sem opinbert listasafn styðst við í starfsemi sinni. Um leið opnast gestum safnsins innsýn í nýjar stefnur og strauma í samtímalist.

Við val á listamönnum til sýninga í D-sal er gerð sú krafa að þeir hafi ekki áður haldið einkasýningu í opinberu listasafni en hafi tengsl við íslenskt listalíf í gegnum nám, sýningar og/eða búsetu á Íslandi. Með umsókninni skal fylgja ferilskrá og fimm ljósmyndir af fyrri verkum, ekki er gerð krafa um útfærða tillögu að sýningu í salnum. Sérskipuð dómnefnd velur úr umsóknum.

Umsóknir berist fyrir lok dags, 18. september 2024 á netfangið listasafn@reykjavik.is merktar „D-2025“. Fyrirspurnir berist á sama netfang.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page