top of page

Opið fyrir umsóknir: Listamannalaun 2024

508A4884.JPG

fimmtudagur, 17. ágúst 2023

Opið fyrir umsóknir: Listamannalaun 2024

Opið er fyrir umsóknir til listamannalauna 2024. Umsóknarfrestur er til og með 2. október 2023.

Samkvæmt lögum um listamannalaun eru til úthlutunar 1600 mánaðarlaun, 133,3 árslaun:
- 50 mánuðir úr launasjóði hönnuða, 4,2 árslaun
- 435 mánaðarlaun úr launasjóði myndlistarmanna, 36,3 árslaun
- 555 mánaðarlaun úr launasjóði rithöfunda, 46 árslaun
- 190 mánaðarlaun úr launasjóði sviðslistafólks, 15,8 árslaun
- 180 mánaðarlaun úr launasjóði tónlistarflytjenda, 15 árslaun
- 190 mánaðarlaun úr launasjóður tónskálda, 15,8 árslaun

Í umsóknum er óskað eftir:
- Lýsingu á vinnu og listrænu gildi verkefna (50% vægi)
- Ferli umsækjenda (30% vægi)
- Verk- og tímaáætlun (20% vægi)

Umsóknir eru einstaklingsumsóknir og nota þarf rafræn skilríki við gerð þeirra. Ef við á þarf að tilgreina umsóknarnúmer samstarfslistamanna í umsóknum.

Sviðslistahópar sækja um í launasjóð sviðslistafólks í gegnum umsókn Sviðslistasjóðs.

Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn aðeins tekin til umfjöllunar ef framvinduskýrslu/lokaskýrslu hefur verið skilað sbr. ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 57/2009. Skýrslur eru á „mínum síðum“ umsækjenda.

Á vef listamannalauna er umsóknarform, matskvarði, áherslur stjórnar, lög og reglugerð og leiðbeiningar um gerð umsókna og skýrslna. Nánar: https://www.rannis.is/sjodir/menning-listir/starfslaun-listamanna/

Listamenn eru hvattir til að skila umsóknum tímanlega en umsóknarfretur rennur út kl. 15:00, þann 2. október 2023.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page