Opið er fyrir umsóknir í gestavinnustofu Gilfélagsins
miðvikudagur, 21. júní 2023
Opið er fyrir umsóknir í gestavinnustofu Gilfélagsins
Gilfélagið auglýsir eftir umsóknum til dvalar í gestavinnustofu Gilfélagsins. Um er að ræða mánaðardvalir á tímabilinu janúar til desember 2024. Hvert tímabil hefst fyrsta hvers mánaðar.
Umsóknarfrestur er til og með 1. ágúst
Gestavinnustofan er fullbúin íbúð með vinnustofu sem hentar einum listamanni eða pari. Innangengt er í viðburðarrýmið okkar Deigluna þar sem er í boði að halda sýningu eða annarskonar viðburð í lok dvalar eða eftir samkomulagi. Íbúðin er staðsett í Kaupvangsstræti, eða Listagilinu í miðbæ Akureyrar þar sem er stutt að sækja alla helstu þjónustu svo ekki sé minnst á fjölbreytt menningarlíf. Umsóknarfrestur er til og með 1. ágúst.
Nánari upplýsingar: http://listagil.is/?page_id=1119