top of page

NORR11: Hundurinn er til staðar - Þorvaldur Jónsson

508A4884.JPG

fimmtudagur, 2. júní 2022

NORR11: Hundurinn er til staðar - Þorvaldur Jónsson

Þorvaldur Jónsson opnar sýninguna
Hundurinn er til staðar í NORR11

Rauður þráður sýningarinnar er hundur að skíta.

Verk Þorvaldar eru einskonar sögusvið þar sem ýmsar atburðarrásir eiga sér stað. Til að mynda má í þeim sjá nakið fólk í hringdans, bófa sem er búinn að týna þýfinu sínu og málara sem stigið hafa í málningu og spora allt út eftir sig. Rauði þráður sýningarinnar er þó hundar að skíta.

Titill sýningarinnar er vísun í verkið The Artist Is Present þar sem höfundurinn, Marina Abramović, sat gegnt gestum sýningarinnar og starði í augun á þeim. Þessi gjörningur hafði þau áhrif að margir gestir upplifðu einlægt augnablik með listakonunni, sumir brotnuðu jafnvel niður, grétu. Á sama hátt er eitthvað mjög einlægt við að horfa í augun á kúkandi hundi, hann algerlega berskjaldaður og óvarinn. Augnablik sem vert er að fanga.

Þorvaldur Jónsson (f. 1984) útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2009 og hefur síðan þá tekið þátt í fjölda sýninga, bæði hérlendis og utan landsteinanna, til dæmis í Þýskalandi, Kína og Tyrklandi. Verk hans hafa meðal annars verið sýnd í Listasafni Reykjavíkur, Gerðarsafni í Kópavogi, Hafnarborg, Listasafni Akureyrar og Safnasafninu á Svalbarðsströnd. Þorvaldur er einn af stofnendum Gallery Ports á Laugavegi.

Sýningin stendur til 9. ágúst, 2022.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page