Nastja Säde Rönkkö: snákar flykkjast um fingur mér

fimmtudagur, 23. júlí 2026
Nastja Säde Rönkkö: snákar flykkjast um fingur mér
snákar hlykkjast um fingur mér - einkasýning eftir Nastja Säde Rönkkö
Fimmtudaginn 23. júlí milli 17-20
SÍM Residency
Seljavegi 32
101 Reykjavík
Sýningarstjóri er Ástríður Jónsdóttir
Með stuðningi frá Finnsku menningarstofnuninni
SÍM Residency, ásamt Finnsku menningarstofnuninni, bjóða ykkur innilega velkomin á sýninguna snákar
hlykkjast um fingur mér, eftir gestalistamann SÍM, Nastja Säde Rönkkö. Sýningin opnar á jarðhæð
Seljavegar 32, fimmtudaginn 23. júlí, kl. 17.
snákar hlykkjast um fingur mér gefur innsýn í umfangsmikið verk Nastja Säde Rönkkö í vinnslu, Arcana
Maiora, sem byggir á heimi tarotsins. Rönkkö hefur nýtt vinnuheimsókn sína í SÍM undanfarna þrjá
mánuði til að þróa og taka upp marga af þeim alls 22 þáttum sem verkið byggir á og samsvara jafn
mörgum spilum Major Arcana sem gjarnan eru kölluð Örlagaspilin. Rétt eins og hvert tarot spil hefur
tvær hliðar, segir hver kafli frá samhverfu sem stundum breytist í andhverfu sína meðan
tilfinningaþrungin frásögnin hlykkjast um myndmál samtímans. Listamaðurinn býður okkur að staldra við
Hofgyðjuna - spil sem hvetur okkur til að taka hið óþekkta í sátt - á þessari sýningu sem er eins konar
neðanmálsgrein við víðtækari myndrænan ljóðabálk Nastja Säde Rönkkö þar sem hún vefur örlagatrú
saman við hversdagslíf á stafrænuöld.
Nastja Säde Rönkkö er listamaður sem vinnur með myndbönd, gjörninga, innsetningar og texta.
Rönkkö hefur sýnt og komið fram á alþjóðavettvangi svo sem á Somerset House í London, Sydney Opera
House í Sydney, SXSW, Austin í Texas, Royal Academy of Arts í London, Glasgow International,
FACT, Foundation for Art and Technology í Liverpool, Museum of Moving Image í New York, Kiasma
Museum of Contemporary Art í Helsinki og BMoCA Boulder Museum of Contemporary Art í Boulder,
Colorado.
Nýlegar einkasýningar hennar eru meðal annars Survival Guide for A Post Apocalyptic Child, HAM
Helsinki (2024) og Forth Burgoyne, Dover (2025), Those Who Kept the Light, Rønnebæksholm
Kunsthall í Danmörku (2022) og Salt in Our Blood, in Our Sweat, In Our Tears, Beaconsfield Gallery í
London (2023).
Kvikmyndir hennar hafa meðal annars verið sýndar á Lesley Lohan-safninu í New York (2026),
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Rotterdam (2025), 25fps í Zagreb í Króatíu (2024), Lagokvikmyndahátíðinni
á Ítalíu (2023) og stuttmyndahátíðinni í Tampere í Finnlandi (2023). Hún er 35.
handhafi titilsins og verðlaunanna Ungi listamaður ársins 2019 í Finnlandi og handhafi Below Zerolistaverðlaunanna
(2023).
Myndréttindi:
Nastja Säde Rönkkö / Aake Kivalo
