top of page

Nýlistasafnið: Til sýnis: Hinsegin umfram aðra - Sýningaropnun

508A4884.JPG

föstudagur, 7. október 2022

Nýlistasafnið: Til sýnis: Hinsegin umfram aðra - Sýningaropnun

Nýlistasafnið býður ykkur innilega velkomin á opnun sýningarinnar

Til sýnis: Hinsegin umfram aðra, laugardaginn 8. október frá kl. 15–17. Sýningin spannar verk eftir listamanneskjurnar Önnu Maggý, Ara Logn, BERGHALL - Önnu Hallin og Olgu Bergmann, Hröfnu Jónu Ágústsdóttur, RB Erin Moran, Regn Sólmund Evu og Viktoríu Guðnadóttur í samtali við verk úr safneign Nýlistasafnsins eftir Dorothy Iannone, Níels Hafstein, Rögnu Hermannsdóttur, Rósku, Svölu Sigurleifsdóttur og Stephen Lawson.

Til sýnis: Hinsegin umfram aðra, er sýning þar sem tekin er fyrir hinsegin myndlist og hinseginleiki í listsköpun og söfnun. Sýningunni stýra þær Ynda Eldborg, listfræðingur og Viktoría Guðnadóttir, myndlistamanneskja. Sýningin spannar bæði verk úr safneign Nýlistasafnsins, valin með hinsegin gleraugum og áralangri þekkingu sýningarstýranna, svo og ný verk sköpuð af hinsegin myndlistarfólki. Á haustmánuðum 2021 fóru Ynda og Viktoría í gegnum safneign Nýlistasafnsins, og völdu nokkur verk sem hægt er að sjá eða túlka sem hinsegin. Listafólkinu var svo boðið að skapa ný verk sem kallast á við hluta þeirra verka sem Ynda og Viktoría höfðu forvalið, og þannig dregið fram og hafið sjónrænt samtal við hinseginleika verka úr safneign. Listafólkinu var frjálst að velja hvaða verk sem var og búa til nýtt verk án þess að nokkrar hömlur væru lagðar á vinnu þeirra eða efnis meðferð. Nýju verkin og verkin úr safneigninni eru svo sýnd samhliða.

Sýningin stendur til 20. nóvember. Fylgist með viðburðadagskrá á heimasíðu Nýlistasafnsins.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page