top of page

Nýló: Að brenna, skógur, eldur - Katie Paterson

508A4884.JPG

fimmtudagur, 1. september 2022

Nýló: Að brenna, skógur, eldur - Katie Paterson

Að brenna, skógur, eldur.

Reykelsisgjörningur 3. september kl. 15

Sem hluti af World Weather Network framtakinu verður flutt reykelsisathöfn eftir skosku listakonuna Katie Paterson í Nýlistasafninu laugardaginn 3. september kl. 15:00.

Reykelsisathöfnin Að brenna, skógur, eldur samanstendur af ilmi úr fyrsta skóginum á jörðinni, fyrir 385 milljónum ára og ilmi úr síðasta skóginum á tímum loftlagsvárinnar. Þessum ilmum hefur verið umbreytt í reykelsi og var kveikt í þeim á mismunandi vettvöngum í Helsinki í september í fyrra.

Nú verður reykelsis athöfnin flutt víðsvegar um heiminn, sem samstarfaaðilar munu skipuleggja í samtali við IHME Helsinki sem bauð Katie til þátttöku í World Weather Network.

Alls standa 27 lista- og menningarstofnanir víðsvegar um heiminn að framtakinu og saman mynda hóp „veðurstöðva“ sem staðsettar eru í höfum, eyðimörkum, fjöllum, landbúnaðarhéruðum, regnskógum, veðurathugunarstöðum, vitum og borgum heims.

Frá og með 21. júní 2022 mun listafólk og rithöfundar senda frá sér „veðurfréttir“ í formi hugleiðinga, sagna, mynda og þankabrota um veðurfar á heimaslóðum þeirra og okkar sameiginlega loftslag, sem saman munu svo skapa heilan klasa radda og skoðana á nýjum, alþjóðlegum vettvangi.

Viðburðurinn er skipulagður af Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar í samstarfi við Nýlistasafnið.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page