Nína Óskarsdóttir: Konan í húsinu

fimmtudagur, 25. september 2025
Nína Óskarsdóttir: Konan í húsinu
Myndlistarsýning – einkasýning
27. - 28. september 2025
Á milli
Ingólfsstræti 6
101 Reykjavík
Opnunartímar:
27. september kl. 15-18 - Opnun
28. september kl. 12-18
Nína Óskarsdóttir opnar einkasýninguna Konuna í húsinu laugardaginn 27.
september í sýningarrýminu Á milli. Á sýningunni sýnir hún seríu af keramík
skúlptúrum sem hún hefur unnið að síðastliðið sumar. Keramíkverkin setur Nína
upp í samtali við textílverk, bæði vefnað og útsaum, ásamt plöntuefni og regnvatni
sem hún hefur safnað í sumar. Verkin eru óhlutdræg og byggja frekar á tilfinningu
um efniskennd, liti, form og áferðir. Keramíkverkin eru einföld í gerð sinni, lengjur
af leir sem rúllast og kuðlast hvor ofan á aðra og fá þannig form. Formin og lögunin
styðja svo tilraunakennda vinnu með áferðir og glerunga og mynda tengsl við önnur
eldri og áður ósýnd verk á sýningunni.
Nína Óskarsdóttir útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands og kláraði þar
bæði BA og MA nám (2020). Hún býr og starfar í Reykjavík. 2018 byrjaði Nína að
vinna með skúlptúr og leir og hefur ferli hennar einna helst einkennst að efnislegri
vinnu hennar í þeim miðli síðan þá. Verk hennar einkennast af frjálslegri meðferð
leirsins, litríkum glerungum og viðfangsefnum sem tengja skúlptúrgerð við náttúru,
trú, arfleifð og mannlegt inngrip.
Nína hefur verið ötul í sýningarhaldi síðustu ár og má þar helst nefna D-Vítamín,
Listasafni Íslands (2024), Uppsprettu í Safnasafninu (2024) og Jólasýninguna í
Ásmundarsal (2023).


