top of page

Námskeið í gelþrykki

508A4884.JPG

miðvikudagur, 23. apríl 2025

Námskeið í gelþrykki

Gelþrykks námskeið verður haldið á verkstæði Grafíksfélagsins laugardaginn 17. maí 2025 kl. 9:30-16:30. Kennari erJóhanna Sveinsdóttir.

Á námskeiðinu verða gerð einþrykk af gelplötum með akríllitum. Þátttakendur gera eigin prufur og öðlast tilfinningu fyrir efni og aðferðum. Fyrst verða gerð einföld þrykk þar sem notuð verða form, stenslar og efni sem gefur áferð. Síðan verður kennt hvernig hægt er að nota, myndir úr tímaritum, ljósrit og teikningar.

Innifalið efni: Akríllitir, pappír og fleira sem til þarf. Afnot af gelplötum og völsum. Þátttakendur koma með eigin pensla 2-3 stk. Nánari upplýsingar verða sendar þátttakendum.

Hámarksfjöldi er 8 og lágmarksfjöldi 3. Ef ekki er næg þátttaka verður endurgreitt að fullu.

Verð er 35.000 kr. Greiða þarf 10.000 við skráningu og 25.000 fyrir 10. maí.

Skráning á: josveins@gmail.com

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page