top of page

Myndlistarsýningin SLEPPA

508A4884.JPG

fimmtudagur, 30. júlí 2026

Myndlistarsýningin SLEPPA

Sérstök athygli er vakin á tveimur gjörningum sem fara fram í tengslum við myndlistarsýninguna SLEPPA í listsalnum hAughúsi í Héraðsdal í Skagafirði næstkomandi sunnudag, 2. ágúst.
//
We would like to draw your attention to two special performances taking place in connection with the exhibition SLEPPA at the hAughús art space in Héraðsdalur, Skagafjörður, this coming Sunday, August 2.



Tónlistargjörningur / Music Performance - FINNA

Heida Karine Jóhannesdóttir Mobeck og Kari Elise Mobeck

Sunnudaginn 2. ágúst kl. 15.00. / Sunday 2. August at 3 PM



Mæðgurnar Heida Karine Jóhannesdóttir Mobeck og Kari Elise Mobeck flytja gjörninginn. Heiða Karine tekur með túbuna og kannski effektabrettið og Kari Elise tekur með teikningar og smáhluti sem hún hefur verið að uppgötva og er að vinna að. Spurning hverju þær finna uppá.


Heida Karine er norsk/íslensk tónlistarkona, tónskáld og listrænn frumkvöðull. Tónlist hennar spannar djass, spuna, samtímatónlist og nýskapandi popptónlist. Verkin eiga rætur í heimspekilegum vangaveltum með áhersla á samspilið við náttúruna og tengsl í víðri merkingu. Texti, sjónrænir listform og samskifti/samspil milli þáttakenda, áhorfenda og umhverfisins gegna veigamiklu hlutverki í verkum hennar. Heiða hefur farið víða um heiminn með túbuna sína. Hún var nýlega ráðin listrænn leiðtogi fyrir Trondheim Jazzorkester (2026 – 2028)


Kari Elise er norsk myndlistarkona. Hún nam við Listaskólann í Þrándheimi og tók svo eitt ár í Myndlista og handíðaskólanum í Reykjavik þar sem hún fór að vinna með skúlptúr. Teikningin er annars hennar aðaltjáningarform, sem hún byrjaði með strax í barnæsku. Að teikna er að skoða heiminn, hugleiða, velja og muna. Verkin tengjast oft einhverjum stað eða stemmingu, og hún notar mismunandi tækni við útfærsluna. Stundum ræður tilviljunin og stundum ræður listakonan yfir tilviljuninni. Kari Elise hefur sýnt verk sín í Noregi, Færeyjum, Íslandi og Nýja Sjálandi. Hún hefur vinnustofu við Lademoen Kunstnerverksteder (LKV) í Þrándheimi.

//

Mother and daughter, Kari Elise Mobeck and Heida Karine Jóhannesdóttir Mobeck perform the performance. Kari Elise brings drawings and small objects that she has been discovering and working on. Heida Karine brings the tube and maybe the effects board. The question is what they will come up with.


Kari Elise is a Norwegian artist. She studied at the Art School in Trondheim and then took a year at the School of Visual Arts and Crafts in Reykjavik, where she began working with sculpture. Drawing is her main form of expression, which she started with as a child. Drawing is about looking at the world, contemplating, choosing and remembering. The works are often related to a place or mood, and she uses different techniques in the execution. Sometimes coincidence rules and sometimes the artist rules over coincidence. Kari Elise has shown her work in Norway, the Faroe Islands, Iceland and New Zealand. She has a studio at Lademoen Kunstnerverksteder (LKV) in Trondheim.


Heida Karine is a Norwegian/Icelandic musician, composer and artistic entrepreneur. Her music spans jazz, improvisation, contemporary music and innovative pop music. The works are rooted in philosophical reflections with an emphasis on the interaction with nature and connections in a broader sense. Text, visual art forms and communication/interaction between participants, viewers and the environment play an important role in her work. Heida has traveled the world with her tuba. She was recently appointed artistic director of the Trondheim Jazz Orchestra (2026 – 2028)

___________________________________________________________________________


Þátttökugjörningur / Participatory Performance,

Borghildur Óskarsdóttir & Ósk Vilhjálmsdóttir & Hulda Ragnhildur Hjálmarsdóttir Sunnudaginn 2. ágúst kl 16.00/ Sunday, 2. August at 4:00 pm



Í tengslum við myndbandverkið Jöklamjólk; krydd í straumi á sýningunni Sleppa bjóða mæðgurnar Borghildur, Ósk og Hulda  gestum að taka þátt í gjörningi við jökulfljótið Héraðsvötn í Skagafirði, skammt frá sýningarstaðnum hAughúsi í Héraðsdal. Hver þátttakandi fær leirskál og er frjálst að leggja í hana eitthvað til að færa straumnum.


Gengið verður með skálarnar frá hAughúsi að fljótinu, sem er um 30 mínútna leið.Skálarnar voru unnar á vinnustofu Borghildar, sem hefur áratugum saman unnið með leir og skálar sem form í list sinni. Leirinn er óbrenndur og rennur saman við jörðina og landslagið.


Í myndbandsverkinu sem sýnt er á sýningunni lagði Ósk túrmerik og kardimommur í skálarnar áður en þeim var fleytt út í jökulfljótið. Kryddin komu frá bökkum Ganges, jökulfljóts sem á upptök sín í Himalaja og hefur tengt menningarheima um aldir.Engin reynsla er nauðsynleg og engin rétt leið til að taka þátt.


Öllum er frjálst að fylgja okkur niður að fljótinu og verða hluti af þessari sameiginlegu stund.


//


As part of the work Milky Rivers; Spices in the Current, the artists invite visitors to join them for a participatory performance at the glacial river Héraðsvötn in Skagafjörður, a short walk from the exhibition space hAughús in Héraðsdalur.


Each participant will receive a clay bowl and is invited to place inside it something they wish to release into the river. The walk takes about 30 minutes each way. The bowls were made in the studio of Borghildur, who has worked with clay and bowls throughout her artistic practice for decades. The clay remains unfired and will gradually merge back into the earth and the landscape.


In the video installation, Ósk filled the bowls with turmeric and cardamom brought from the banks of the Ganges, a glacial river originating in the Himalayas that has connected cultures for centuries, before setting them afloat in Héraðsvötn. Through this performance, we invite others to continue the work with their own materials, thoughts, and gestures.No experience is needed, and there is no right way to participate.


Everyone is free to join us by the river and become part of this shared moment.

___________________________________________________________________________


Myndlistarsýningin Sleppa opnaði 27. júní. Sýningin er opin alla föstudaga, laugardaga og sunnudaga  frá kl. 13.00 -18.00 til 9. ágúst.


Sleppa er samsýning fimmtán myndlistarmanna sem jafnframt mynda sjö mæðgnapör:

Sleppa - a group exhibtion featuring fifteen artists forming seven mother-daughter pairs:


Aðalheiður Eysteinsdóttir og Brák Jónsdóttir, Borghildur Óskarsdóttir, Ósk Vilhjálmsdóttir og Hulda Ragnhildur Hjálmarsdótti, Áslaug Thorlacius og Helga Thorlacius Finnsdóttir, Inga Sigga Ragnarsdóttir og Katrín Agnes Ingudóttir Klar, Margrét Stefánsdóttir og Lára Margrétardóttir, Ragnhildur Stefánsdóttir og Ragnhildur Weisshappel og Rósa Gísladóttir og Þorgerður Þórhallsdóttir.


Að sleppa er marglaga hugtak sem hér er helst skoðað í samhengi mæðgnasambandsins. Kannað er hvaða umbreytandi afl felst í því að hætta að halda fast. Sleppa. Sjö mæðgur í myndlist koma hér saman í samtal. Með þessari samsetningu er ljósi varpað á hvernig togstreita ótta og ástar, festu og frelsis birtist innan mæðgnasambandsins, en einnig hvernig sköpunarþráin flyst í gegnum naflastrenginn.

//

The title of the exhibition refers to letting go. It is a multilayered concept, explored here primarily in the context of the mother-daughter relationship, reflecting on the transformative energy released when ceasing to hold on tightly. Seven mothers and daughters working in the visual arts come together in dialogue. Through this gathering, light is shed on how the tension between fear and love, attachment and freedom, manifests within the mother-daughter relationship, as well as on how the need to create is transmitted through the umbilical cord.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page