top of page
Myndlistarfélagið á Akureyri: Opið fyrir umsóknir fyrir sýningatímabilið 2027

miðvikudagur, 18. febrúar 2026
Myndlistarfélagið á Akureyri: Opið fyrir umsóknir fyrir sýningatímabilið 2027
Myndlistarfélagið hefur opnað fyrir umsóknir fyrir sýningatímabilið 2027 í Mjólkurbúðinni-Sal Myndlistarfélagsins á Akureyri.
Salurinn er prýddur stórum gluggum sem gera sýningar í salnum sýnilegar frá götunni. Viljum við bjóða listamönnum salinn sem er staðsettur í Listagilinu á Akureyri til leigu.
Umsóknir þurfa að berast félaginu í gegnum https://myndlistarfelagid.is/#/ undir liðnum: Umsókn um sýningu.
Ef einhverjar spurningar vakna svörum við þeim jafnframt í tölvupósti: myndlistarfelagak@gmail.com
Vinsamlega takið fram hvaða tími myndi henta ykkur og munum við verða við þeim óskum eftir því sem mögulegt er.
bottom of page
