Muggur - Opið fyrir umsóknir

þriðjudagur, 11. ágúst 2026
Muggur - Opið fyrir umsóknir
Muggur er samstarfsverkefni SÍM, Myndstefs og Reykjavíkurborgar. Hlutverk sjóðsins er að styrkja myndlistarmenn til tímabundinnar dvalar erlendis vegna sýningar, vinnustofu eða annars sambærilegs myndlistarverkefnis.
Auglýst er eftir umsóknum í Mugg – dvalarsjóð fyrir myndlistarmenn vegna verkefna sem hefjast á tímabilinu 1. september – 28. febrúar 2027.
Umsóknarfrestur er á miðnætti 31. ágúst 2026.
Muggur er samstarfsverkefni SÍM, Myndstefs og Reykjavíkurborgar. Hlutverk sjóðsins er að styrkja myndlistarmenn til tímabundinnar dvalar erlendis vegna sýningar, vinnustofu eða annars sambærilegs myndlistarverkefnis.
Veittir eru styrkir að upphæð 50.000,- kr fyrir vikudvöl erlendis.*
Veittir eru styrkir til dvalar erlendis vegna:
§ Vinnustofudvalar
§ Myndlistarsýningar
§ Annara myndlistarverkefna
*Í sumum tilfellum eru veittir styrkir í fleiri vikur, en þó aldrei fleiri en 3 vikur í senn, eða að
hámarki 150.000.- kr.
Sótt er um á vefsíðu SÍM: www.sim.is/muggur-umsókn
Umsóknum skal fylgja:
§ Ítarleg og greinargóð lýsing á verkefninu, upplýsingar um sýningu, sýningarstað, vinnustofusetur, verkstæði, ráðstefnu eða annað það sem við á hverju sinni.
§ Staðfesting ábyrgðarmanns verkefnisins í því landi sem það fer fram í, þ.e. sýningarstjóra, safnstjóra, galleríeiganda, forstöðumanns vinnustofuseturs, verkstæðis eða annars, allt eftir eðli verkefnisins. Dagsetningar verkefnisins verða að koma fram.
Þeir sem þegar hafa fengið úthlutað styrk úr dvalarsjóði Muggs annars vegar og ferðasjóði Muggs hins vegar þurfa að skila greinagerð áður en sótt er um aftur.
Mikilvægt er að hafa umsóknina vandaða, skýra og hnitmiðaða.
Úthlutunarnefnd fer yfir umsóknir að umsóknarfresti liðnum og verður öllum umsóknum svarað. Tilkynnt verður um úthlutun styrkja vegna 2. úthlutunar úr sjóðnum fyrstu vikuna í október.
Hægt er að fylla út greinargerð HÉR.
Nánari upplýsingar veitt á sim@sim.is eða í síma 551 1346.


