top of page

Muggur: Opið fyrir umsóknir - Umsóknarfrestur framlengdur til 10. ágúst

508A4884.JPG

föstudagur, 22. júlí 2022

Muggur: Opið fyrir umsóknir - Umsóknarfrestur framlengdur til 10. ágúst

Opið er fyrir umsóknir um MUGG til miðnættis 10. ágúst
Umsóknareyðublað má finna hér:
https://www.sim.is/muggur-ums%C3%B3kn

UM MUGG:

Muggur er sjóður sem Menningarmálanefnd Reykjavíkur, SÍM og Myndstef stofnuðu árið 2004 og er SÍM umsjónaraðili sjóðsins.



Hlutverk sjóðsins er að styrkja myndlistarmenn til tímabundinnar dvalar erlendis vegna sýningar, vinnustofu eða annars sambærilegs myndlistarverkefnis. Með þeim hætti er sjóðnum ætlað að efla myndlistarstarf í Reykjavík og styrkja ímynd Reykjavíkurborgar sem framsækinnar menningarborgar á heimsvísu. Stofnun sjóðsins er liður í því að gera Reykjavíkurborg að vettvangi alþjóðlegra listastrauma.



Veittir eru styrkir til dvalar erlendis vegna:

Myndlistarsýningar

Vinnustofudvalar / þátttöku í verkstæði

Annarra myndlistarverkefna



Umsóknarfrestir fyrir Mugg 2022 eru eftirfarandi:



01.02.2022 vegna verkefna sem hefjast á tímabilinu 01.03.- 31.08.2022.

01.08.2022 vegna verkefna sem hefjast á tímabilinu 01.09.2022 – 28.02.2023.

Umsóknarfrestur er til miðnættis þann dag sem auglýstur er.


Skilyrði
Til að geta fengið úthlutun úr dvalarsjóði Muggs þarf umsækjandi að vera fullgildur skuldlaus félagi í SÍM og leggja fram tilskilin gögn er staðfesti boð um þátttöku í myndlistarviðburði eða úthlutun á aðstöðu til vinnu við myndlist.

Ekki er veitt fé vegna dvalar í vinnustofum þegar fullir dvalarstyrkir fylgja úthlutun.

Skilyrði er að verkefnið sé sýnilegt og að það geti að mati sjóðsstjórnar styrkt ímynd Reykjavíkur sem uppsprettu fyrir öflugt og framsækið myndlistarlíf.

Þeir sem þegar hafa fengið úthlutað styrk úr dvalarsjóði Muggs annars vegar og ferðasjóði Muggs hins vegar þurfa að skila greinagerð áður en sótt er um aftur.

Við bendum félagsmönnum á að hægt er að sækja um Muggs styrk fyrir dvöl í gestavinnustofum SÍM í Berlín.

Vinsamlega athugið að dvalarstyrkir eru eingöngu veittir til einstaklinga.

Umsóknum skal fylgja ítarleg og greinargóð lýsing á verkefninu, upplýsingar um sýningu, sýningarstað, vinnustofusetur, verkstæði, ráðstefnu eða annað það sem við á hverju sinni. Einnig skal fylgja staðfesting ábyrgðarmanns verkefnisins í því landi sem það fer fram í, þ.e. sýningarstjóra, safnstjóra, galleríeiganda, forstöðumanns vinnustofuseturs, verkstæðis eða annars, allt eftir eðli verkefnisins. Dagsetningar verkefnisins verða að koma fram.

Styrkþegar undirgangast skuldbindingar gagnvart sjóðunum samkvæmt sérstökum samningum sem gerðir verða í kjölfar úthlutunar og kveður m.a. á um að styrkþegum beri að skila stuttri greinargerð um notkun styrksins.

Mikilvægt er að hafa umsóknina vandaða, skýra og hnitmiðaða. Lesa reglur og leiðbeiningar vel.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page