Mosfellsbær: Styrkir til menningarmála 2026

fimmtudagur, 29. janúar 2026
Mosfellsbær: Styrkir til menningarmála 2026
Menningar-, íþrótta- og lýðheilsunefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna listviðburða og menningarmála árið 2026.
Tilgangur árlegrar styrkveitingar til lista- og menningarmála er að efla menningarstarfsemi í Mosfellsbæ. Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök eða stofnanir, innan sem utan Mosfellsbæjar.
Fjárframlög til lista og menningarmála eru af tvennum toga:
-Styrkir til almennrar listastarfsemi sem veittir eru hópum og félagasamtökum sem sannað hafa gildi sitt í mosfellsku menningarlífi eða geta með skýrum hætti sýnt fram á gildi starfs síns, án þess þó að styrkir séu tengdir ákveðnu verkefni.
-Styrkir vegna viðburða eða verkefna sem veittir eru einstaklingum, hópum og félagasamtökum sem geta með skýrum hætti sýnt fram á gildi einstakra tilgreindra verkefna á sviði menningar og lista í eða fyrir Mosfellsbæ.
Umsóknum skal skilað í síðasta lagi þann 3. mars 2026 á Mínum síðum Mosfellsbæjar.
Ekki er tekið við umsóknum eftir 3. mars.
Niðurstöður menningar-, íþrótta- og lýðheilsunefnd Mosfellsbæjar munu liggja fyrir eigi síðar en 10. mars 2026 og eru háðar samþykki bæjarstjórnar.


