top of page

Mjólkurbúðin: Ró í náttúrunni - Sólveig Dagmar Þórisdóttir

508A4884.JPG

miðvikudagur, 15. júní 2022

Mjólkurbúðin: Ró í náttúrunni - Sólveig Dagmar Þórisdóttir

MÁLVERKASÝNINGIN „RÓ í NÁTTÚRUNNI“, er sölusýning sem er haldin 17-28 september, 2021 í „Mjólkurbúðinni“, sal Myndlistarfélags Akureyrar, að Kaupvangsstræti 12. Opið er frá 15 til 18 alla virka dagana og um helgar frá 14.-17. Sýningaropnun verður kl. 17-18, föstudaginn 17. september, 2021. Allir eru velkomnir. Sólveig Dagmar Þórisdóttir hefur verið starfandi listamaður að Korpúlfsstöðum í Reykjavík frá árinu 2007 til 2020. Hún á langan starfsferil að baki sem myndlistarmaður, grafískur hönnuður og hagnýtur menningarmiðlari. Einnig starfað við ökuleiðsögn ferðamanna í yfir tvo áratugi fyrir stærstu ferðaþjónustufyrirtæki Íslands. Hún er jafnframt eigandi Create Iceland – Travel ehf. Myndlistarmaðurinn tengir listsköpun sína við sköpunarkraft í ró og flæði í náttúrunni og málar oftast á staðnum á ferðalögum sínum. Þannig miðlar hún myndlist sinni á áhrifaríkan hátt og sýnir sig jafnframt í vídeóverki við undirbúning málverka sinna. Þannig vill hún sýna hve nærandi það er að vinna í ró og flæði úti, með sér á staðnum. „Allir geta málað úti í ró á staðnum“. Sólveig Dagmar hefur ferðast víða um Ísland og einnig til Tenerife, til að vinna málverkin sem sýnd eru. Málverkin á sýningunni eru flest unnin síðastliðin þrjú ár. Sólveig Dagmar kennir einnig hugmyndavinnu ferðaþjónustuaðilum, sem dæmi Strandamönnum og Vestfirðingum árið 2011 í Grunnskólanum á Hólmavík. Þannig styður Sólveig við mennta-og menningartengda ferðaþjónustu með þekkingu fyrir alla þá sem þurfa. Mjög mikilvægt er listamanninum, að kenna einstaklingnum að skapa með list sinni, í ró úti í „Listasalnum náttúrunni“. Málverkin eru þannig uppspretta af mikilli vinnu myndlistamannsins með það í huga að fá innsýn í hugarheim, þroska og dýpt, sem einstaklingurinn þroskar með sér úti. Málverkin eru þannig unnin í því flæði og eru afrakstur af ferðalögum hennar víða. Nú hefur hún einnig hafið kennslu í teikningu og málun. Sólveig Dagmar var gestalistamaður Hveragerðisbæjar í listhúsi þeirra „Varmahlíð“ í júnímánuðunum árin 2009 og 2021.

VERK Í OPINBERRI EIGU OG EINKA EIGU: Hveragerðisbær; „Óstjórnlegur kraftur jarðarinnar“, 2021 / Einar Sigurðsson; „Kanna að Eiðum í Kolgrafarfirði“, 2021 / Stefán Arngrímsson; „Herðubreið“, 2021 / Þórir Örn Sigurðsson; „Vesturhorn og Brunnhorn við Stokksnes“, 2021 / Kristinn Þór Sigurðsson; „Stuðlagil“, 2021 / Margrét Þórisdóttir; „Helgafell í von að vori“, 2020 / Guðríður Magnúsdóttir; „Burstafell“, 2020 / Fanndís Halla Steinsdóttir, „Flæði blárra blóma“, 2019 / Guðmundur R. Guðmundsson; „Hraundrangar á Jónsmessunótt“, 2019 / Steinunn Hilmarsdóttir og Sigurður Guðmundsson; „Haust á Þingvöllum; 2016 / Hveragerðisbær; „Drengur við lestur“; 2009 / Ragnar Björnsson; „Þrjú haust“, 2016, „Hekla“ 2015, „Haust“ 2007 / Jónatansson og co. lögfræðistofa ehf.; „Svínafellsjökull“, 2012 / Ágúst Jóhannesson, KPMG; „Eyjafjallajökull“, 2011 / Óskar Sigurðsson; „Án titils“, 2008. / Jónína Hjördís Gunnarsdóttir; „Án titils“, 2007 / Dögg Pálsdóttir; „Hringrás“ 2005.

STYRKIR OG VIÐURKENNNGAR: Menntamálaráðuneytið árið 2008: sýningarstyrkur vegna sýningarinnar „För hersins“, sem sýnd var í Landsbókasafni Háskólabókasafni, Þjóðarbókhlöðu. Einnig var sú sýning í Duus-húsum í Reykjanesbæ árið 2007 og hlaut sýningarstyrk frá bænum. MENNTUN: 2006-2008: Háskóli Íslands, The University of Iceland, MA hagnýt menningarmiðlun - MA Cultus Communication. 1996-2000: Listaháskóli Íslands, BA grafísk hönnun - BA Baccalaureus Artuium. 1994-1995 Leiðsögumannaskólinn MK; leiðsögn og ökuleiðsögn - professional driver guide in Iceland. 1990 -1992 Myndlistaskólinn í Reykjavík - Art school of Reykjavík; módelteikning og listmálun - drawing, model, painting. 1989-1990 Iðnskólinn í Reykjavík; tækniteiknun - Tecknical College, school of industri, Reykjavík, tecknical drawing.

EINKASÝNINGAR: „Mjólkurbúðin“, Listagilinu Akureyri, salur Myndlistafélags Akureyrar, 2021 - Korpúlfsstaðir, Art center 2012, 2011 2009 - Djúpið yfirlitssýning, Saltfisksetrið Grindavík, 2009 - Landsbókasafni Háskólabókasafn Þjóðarbókhlaða, The National Library of Iceland, Reykjavík. För hersins, 2008 - Kröftug Korpumenning, aðalbygging Háskóla Íslands, 2008 - Ljósmynda-og gjörningarsýning, För hersins einnig sýnd í Duus-húsum, Reykjanesbæ, 2008 - Vatn í sjálfu sér, Listaháskóli Íslands, Iceland Academy of Art, 2000 - Guð er hringur, Búnaðarbankinn Hlemmi, 1999. SAMSÝNINGAR: Art Messe Hlöðuloftinu Korpúlfsstöðum, 2019 - Korpúlfsstaðir Art center, Eilífðar smáblóm, 2015, vorsýning, 2015, Birta, 2010, Rauður, 2009, Upphaf, 2008 - Skógarsafn, Eyjafjallajökull, 2011 - Þjóðminjasafn Íslands, The National Museum, Lífshlaup Péturs Jónssonar, 2008.

UMFJÖLLUN: 2021 https://www.hveragerdi.is/.../ostjornlegur-kraftur.../2... 2021
https://aevar.is/?p=18682 2021 https://sim.is/varmahlid-listhus-hveragerdis.../ 2020
https://www.facebook.com/watch/?v=708519883030427 2020
https://www.facebook.com/daleidslumedferdin/videos/363230631735642/ 2009
https://www.vf.is/.../solveig-dagmar-synir-djupid-i... 2008
https://timarit.is/page/6326703#page/n47/mode/2up 2008
https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1198676/ 2008
https://timarit.is/page/4186394#page/n17/mode/2up 2008
https://www.mbl.is/myndasafn/mynd/197761/ 2008
https://sofn.reykjanesbaer.is/.../Skjol/arskyrslabyr2008.pdf 2008
http://wayback.vefsafn.is/.../album/slides/IMG_7489.html
2015-2021 Create Iceland travel ehf., framkvæmdastjóri, myndlistarmaður, hagnýtur menningarmiðlari og grafískur hönnuður - 2009-2015 ökuleiðsögumaður, driver guide, Grayline Iceland allt árið - 2009-2011 stjórnarseta Kjósastofu og hugmyndavinna - 2002-2015 Auglýsingastofa Íslands ehf., framkvæmdatjórn og grafískur hönnuður - 2000-2002 Auglýsingastofan Hausverk, núverandi nafn Pipar, grafísk hönnun og verkefnastjórnun - 1996-2007 stjórnarseta í menningarmálanefnd stjórnmálaflokksins. Aðild að félögum: SÍM - Samband íslenskra myndlistarmanna - Samtök hönnuða - Form Ísland - Nordiska Akvarellsällskapet Danmörku Að lokum má sjá heimasíðu listamannsins hér að neðan:
https://www.arkiv.is/artist/610
https://www.facebook.com/artsolveigdagmar/videos/390307339255361
https://www.facebook.com/artsolveigdagmar

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page