top of page

Michelle Bird: Stúlkan, hesturinn og hálendið

508A4884.JPG

miðvikudagur, 28. maí 2025

Michelle Bird: Stúlkan, hesturinn og hálendið

Sýningaropnun og námskeið: "Stúlkan, hesturinn og hálendið" / "The Girl, the Horse and the Highlands"

Laugardaginn 31. maí næstkomandi opnar einkasýning bandarísku listakonunnar Michelle Bird, "Stúlkan, hesturinn og hálendið" / "The Girl, the Horse and the Highlands" að Bæ á Höfðaströnd í Skagafirði. Sýningin stendur til 26. júní og er opin alla daga milli kl. 12 og 18.

Michelle Bird dvaldi í alþjóðlegum hópi listamanna í gestavinnustofu Listasetursins í Bæ sumarið 2012 og settist í kjölfar þeirrar dvalar að á Íslandi. Hún hefur lengst af verið búsett í Borgarnesi en flutti nýverið á Suðurlandið. Michelle hefur haldið fjölmargar einkasýningar bæði hérlendis og víðs vegar um heim. Einnig hefur hún haldið námskeið fyrir börn og fullorðna í teikningu og listmálun. Samhliða sýningunni verður boðið upp á námskeið í teikningu og málun þær helgar sem sýningin stendur yfir, milli kl. 11 og 12 báða helgardaga.

Sjá nánar um listakonunna á www.artofmichellebird.com og um starfsemi Listasetursins í Bæ á www.baer.is.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page