top of page

Mentor: Ásmundur Sveinsson og Carl Milles í Ásmundarsafni

508A4884.JPG

miðvikudagur, 17. maí 2023

Mentor: Ásmundur Sveinsson og Carl Milles í Ásmundarsafni

Sýningaropnun á Mentor: Ásmundur Sveinsson og Carl Milles verður í Listasafni Reykjavíkur Ásmundarsafni, laugardaginn 20. maí kl. 14.00. Einnig verður blásið til veislu í tilefni 40 ára afmælis Ásmundarsafns á 130 ára afmælisdegi Ásmundar sem fæddist þann 20. maí árið 1893.

Á sýningunni verða verk myndhöggvaranna Ásmundar Sveinssonar (1893-1982) og læriföður hans Carls Milles (1875-1955) frá Svíþjóð en Ásmundur nam við Konunglega sænska listaháskólann í Stokkhólmi undir handleiðslu Milles frá 1920-26.

Carl Milles er einn virtasti myndhöggvari Svíþjóðar og líkt og Ásmundur gaf hann hús sitt, vinnustofu og verk til þjóðar sinnar eftir sinn dag. Ásmundur og Milles bundust sterkum böndum og töluverðan samhljóm má finna í ferli þeirra og verkum. Milles nýtti sér sögu og menningu eigin þjóðar sem innblástur í verk sín og á sama hátt hvatti hann Ásmund til þess að fanga íslenska menningararfleið sem glögglega má sjá í verkum hans í gegnum hans feril.

Sýningarstjórar eru Edda Halldórsdóttir og Sigurður Trausti Traustason og er sýningin liður í samstarfi Millesgården safnsins í Svíþjóð og Listasafns Reykjavíkur - Ásmundarsafns.

Dagskrá:

Laugardag 20. maí
14.00: Opnun sýningar. Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson opnar sýninguna.
15.00: Leikir, lúðrasveit og veitingatjald í garðinum
16.00: Leiðsögn Onita Wass, safnstjóra Millesgården um sýninguna

Sunnudag 21. maí
13:00: Leiðsögn sýningarstjóra Eddu Halldórsdóttur og Sigurðar Trausta Traustasonar

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page