Mennirnir með bleika þríhyrninginn
föstudagur, 12. maí 2023
Mennirnir með bleika þríhyrninginn
17. maí n.k. er alþjóðlegur dagur gegn fordómum í garð hinsegin fólks en þann dag kl. 17 býður Árbæjarsafn gestum að hlýða á erindi Guðjóns Ragnars Jónassonar MENNIRNIR MEÐ BLEIKA ÞRÍHYRNINGINN.
Mennirnir með bleika þríhyrninginn segir sögu ungs, samkynhneigðs manns í fangabúðum nasista og er frægust þeirra ævisagna sem lýsa hlutskipti homma í Þriðja ríki Hitlers. Maðurinn að baki sögunni hét Josef Kohout. Árið 1939 var hann handtekinn, ákærður fyrir „alvarlegan saurlifnað“ og dæmdur til þrælkunar, einn af þúsundum samkynhneigðra karla sem báru bleikan þríhyrning í fangabúðum nasista. Þar þraukaði hann skelfilega vist í sex ár uns hann fékk frelsi í lok heimsstyrjaldarinnar síðari. Í tvo áratugi safnaði hann kjarki til að sigrast á sársaukanum og segja sögu sína sem loks birtist á prenti árið 1972.
Í fyrirlestrinum fjallar þýðandinn, Guðjón Ragnar Jónasson, um bókina og tilurð hennar og hvernig nýta megi hana við kennslu. Guðjón Ragnar er rithöfundur og íslenskukennari við MR.
Fyrirlesturinn fer fram í Kornhúsi sem er staðsett neðst á safnsvæðinu.
Þátttaka er ókeypis og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.