top of page

Menningarhús Úlfarsárdal: Listaverkaveggurinn afhjúpaður 13. maí

508A4884.JPG

fimmtudagur, 12. maí 2022

Menningarhús Úlfarsárdal: Listaverkaveggurinn afhjúpaður 13. maí

Sýning | Listaverkaveggurinn afhjúpaður í fyrsta sinn
Borgarbókasafnið | Menningarhús Úlfarsárdal
Föstudaginn 13. maí kl. 15:00-16:00

Nú er loksins komið að því að afhjúpa listaverkavegginn í Borgarbókasafninu Úlfarsárdal en það verður gert föstudaginn 13. maí kl. 15:00.
Listaverkaveggurinn er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins og Listasafns Reykjavíkur.
Einn veggur á safninu er helgaður tímabundnum sýningum á verki eða verkum úr safneign Listasafns Reykjavíkur.
Listasafn Reykjavíkur býður upp á fjölbreyttar innlendar og alþjóðlegar sýningar á nútíma- og samtímalist eftir virta íslenska og erlenda listamenn. Safnið er einnig vettvangur fyrir ungt og upprennandi hæfileikafólk. Safnið hefur í fórum sínum mörg af þekktustu verkum íslenskra listamanna en í heildarsafneign þess eru rúmlega sautján þúsund verk.
Fyrsta verkið er eftir listamanninn Sigurð Árna Sigurðsson (f. 1963) og nefnist Rautt samhengi (2018). Verkið er lágmynd, skúlptúr sem hangir á vegg og virkar bæði tvívíður og þrívíður. Þar má sjá skemmtilegt samspil verksins sjálfs og skugganna sem það varpar á vegginn.
Öll velkomin - Sjón er sögu ríkari!

Viðburðurinn á heimasíðu.
Viðburðurinn á Facebook.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page