top of page

Menning þarf hús­næði

508A4884.JPG

fimmtudagur, 12. nóvember 2026

Menning þarf hús­næði

Myndlistarmenn þurfa aðstöðu til að skapa menningarverðmæti.

Áður en myndlistarverk er sýnt opinberlega hefur farið fram vinna sem sjaldan sést. Sú vinna krefst tíma, aðstöðu og húsnæðis. Vinnustofur myndlistarmanna eru því ein mikilvægasta forsenda sköpunarinnar. Þar fá hugmyndir að þróast, tilraunir eru gerðar og listræn hugsun fær rými til að taka á sig form. Þegar myndlistafólk missir vinnuaðstöðu sína raskast sköpunarferlið, verkefni tefjast og samfella í starfi rofnar.

Í ljósi þeirrar alvarlegu stöðu sem upp er komin í vinnustofumálum listamanna vill Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM) kalla eftir samráði við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið, forsætisráðuneytið, Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga.

Alþingi samþykkti árið 2023 myndlistarstefnu til ársins 2030 þar sem eitt meginmarkmiðið er að efla myndlistarmenningu á Íslandi, styrkja stuðningskerfi og stuðla að vexti og sýnileika íslenskrar myndlistar. Til þess að þau markmið náist þarf jafnframt að tryggja þær grunnforsendur sem listsköpun byggist á með fjármögnuðum aðgerðum. Þrátt fyrir samþykkta myndlistarstefnu skortir enn heildstæða langtímastefnumótun ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu og rekstur vinnustofuhúsnæðis fyrir myndlistarmenn.

Listirnar hafa alla tíð verið mikilvægur þáttur í samfélaginu. Vinnustofur myndlistamanna eru þar grundvallar innviðir, jarðvegurinn sem listsköpunin sprettur úr. Án langtímastefnumótunar og fjármagnaðra aðgerða stjórnvalda veikjast forsendur þeirra öflugu og fjölbreyttu listamenningar sem einkennir Ísland og sjálfsmynd okkar sem þjóðar.

SÍM og Skipholt 37

Árið 2025 gerði SÍM þriggja ára rekstrarsamning við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið sem byggðist á uppbyggingu listmiðstöðvar og vinnustofa í Skipholti 37. Í nóvember sama ár gerði SÍM síðan fimm ára leigusamning við Framkvæmdasýsluna– Ríkiseignir (FSRE) um húsnæðið. Þar stóðu vonir til langtíma uppbyggingar vinnustofuhúsnæðis fyrir myndlist og aðrar listgreinar.

Skömmu eftir að SÍM tók við húsnæðinu var því lokað af Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins vegna ófullnægjandi brunavarna. Tveir þriðju hlutar hússins hafa áfram verið lokaðir af sömu ástæðum og samkvæmt nýrri brunahönnun er gert ráð fyrir að um þriðjungur þess nýtist ekki sem vinnustofuhúsnæði. Í júní 2026, þegar SÍM hafði einungis um 30% hússins til afnota, var svo tilkynnt að Skipholt 37 væri komið í söluferli. Þar með voru forsendur uppbyggingar listmiðstöðvarinnar brostnar án þess að ríkið hefði lagt fram aðra lausn til að uppfylla samninginn.

SÍM hefur nú neyðst til að segja upp leigusamningum við listamenn í Skipholti sem munu yfirgefa húsið á næstu mánuðum. Það hefur í för með sér verulega röskun á starfi þeirra og undirstrikar hversu ótrygg vinnuaðstaða myndlistarmanna er. Ákvörðun stjórnvalda um að styðja uppbyggingu vinnustofa og listmiðstöðvar í Skipholti 37 var mikilvægt skref í átt að bættum starfsskilyrðum myndlistarmanna. Forsendurnar sem samstarfið byggðist á hafa hins vegar kollvarpast. SÍM telur því brýnt að menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið vinni saman að raunhæfri lausn. SÍM skorar á stjórnvöld að hætta við fyrirhugaða sölu á Skipholti 37, tryggja nauðsynlegar endurbætur á húsnæðinu og endursemja við SÍM með langtímahagsmuni myndlistarinnar að leiðarljósi.

Hlutverk SÍM

SÍM hefur gætt almennra hagsmuna myndlistarmanna á Íslandi í rúma fjóra áratugi, og samhliða rekið vinnustofur fyrir félagsmenn í um 30 ár. SÍM rekur óhagnaðardrifið leigufélag með yfir 220 vinnustofum án skipulagðrar aðkomu ríkisins og sveitafélaga annarra en Reykjavík. SÍM axlar þannig ábyrgð á innviðaskuld í þessum málaflokki sem ætti að vera sameiginleg með stjórnvöldum.

Langtímaleigusamningur sem gerður var við Reykjavíkurborg um rekstur vinnustofa á Korpúlfsstöðum upp úr aldamótum var grundvöllur þeirrar leigustarfsemi sem SÍM sinnir í dag. Framlag Reykjavíkurborgar, örugg og sanngjörn leiga, er þakkarvert og mikilvægt. En þörfin fyrir vinnustofur hefur einungis aukist og í dag leigir SÍM átta önnur atvinnuhúsnæði sem telja mörg þúsund fermetra í Reykjavík, Kópavogi og Garðabæ.

Aðrir leigusamningar SÍM byggjast hvorki á langtímastefnumótun eða skipulagðri uppbyggingu. Í einu tilviki fær SÍM tímabundin afnot af húsnæði án leigugreiðslna vegna þess hversu illa farið það er. Húsnæðið lekur víða sem takmarkar verulega notagildi þess og endurspeglar jafnframt við hversu bágar aðstæður margir myndlistarmenn vinna. Til að mæta þörfum sinna félagsmanna hefur SÍM oft verið tilneytt til að gangast í ábyrgð á ótryggum og skammtíma leigusamningum, of hárri leigu og misjöfnu ástandi húsnæðis. Leigumarkaðurinn er fyrst og fremst hagnaðardrifinn, eigendaskipti geta verið ófyrirsjáanleg og samningsstaða lítils félags eins og SÍM erfið.

Samkvæmt heimildum höfundar axlar ekkert annað fagfélag listgreina, hvorki á Íslandi né á hinum Norðurlöndunum, ábyrgð á slíkri innviðauppbyggingu án skipulagðrar aðkomu og ábyrgðar stjórnvalda.

SÍM skorast ekki undan þessu hlutverki en kostnaðurinn er mikill og áhættan sömuleiðis. Félagið reynir eftir fremsta megni að halda leigu til félagsmanna eins lágri og kostur er en sífellt erfiðara reynist að tryggja sjálfbærni rekstursins. Án SÍM væru mörghundruð myndlistarmenn án vinnustofa á höfuðborgarsvæðinu.

Við lítum á listasöfn, sýningarsali og menningarstofnanir sem sjálfsagðan hluta samfélagsins. En til þess að þar sé hægt að sýna ný verk þarf listsköpunin rými til að eiga sér stað. Það er því ekki nóg að fjárfesta í miðlun og varðveislu myndlistar ef aðstaðan til frumsköpunar er ótrygg. Vinnustofur eru hluti af sömu menningarlegu innviðum og söfn og sýningarrými, þótt starfsemin sem þar fer fram sé sjaldnar sýnileg almenningi.

Vinnustofuvandinn er menningarmál

Framlag hins opinbera til vinnuaðstöðu myndlistarfólks á Norðurlöndum og víðar í Evrópu tekur á sig ólíkar myndir. Í Helsinki rekur borgin sjálf vinnustofuhúsnæði fyrir listamenn og gerir fimm ára leigusamninga um afnot þess. Í Kaupmannahöfn sér undirstofnun danska menningarmálaráðuneytisins um vinnustofur, verkstæði og faglega ráðgjöf án endurgjalds. Austurríska ríkið rekur og leigir listamönnum vinnustofum til margra ára og í Berlín eru sérstakar opinberar lánaábyrgðir í boði fyrir faglistafólk og fagsamtök til kaupa og endurbóta á eigin vinnuaðstöðu. Þar er Investitionsbank Berlin meðal lánastofnanna. Allt eru þetta dæmi um leiðir sem hægt væri að skoða hér á landi.

SÍM skorar á stjórnvöld og sveitarfélög að hefja þegar í stað aðgerðir til að:

Verja starfandi vinnustofur og tryggja áframhaldandi nýtingu þeirra.
Bregðast við bráðum húsnæðisvanda myndlistarmanna og kortleggja þörfina fyrir vinnustofur.
Gera langtímaleigusamninga við listamenn og samtök þeirra um vinnustofur.
Koma á skipulögðu stuðningskerfi sem tryggir viðráðanlegt leiguverð.
Byggja upp varanlegt vinnustofuhúsnæði fyrir myndlistarmenn í opinberri eigu eða á vegum sjálfseignarstofnana með skýrt menningarlegt hlutverk.

Jafnframt þarf að kanna nýjar leiðir til fjármögnunar, svo sem langtímalán eða opinberar lánaábyrgðir vegna kaupa og uppbyggingar vinnustofuhúsnæðis. Þar mætti meðal annars skoða hvort Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) gæti komið að þróun slíks fyrirkomulags. Einnig mætti veita langtímalán til sjálfseignarstofnana og óhagnaðardrifinna félaga sem kaupa húsnæði og leigja það áfram á hagstæðum kjörum eða gera kaupleigusamninga við listamenn.

Menning byggist á vinnu, þekkingu og sköpunarkrafti þeirra sem starfa á vettvangi lista. Þótt við leggjum metnað í að sýna íslenska myndlist og varðveita menningararfinn megum við ekki gleyma þeim aðstæðum sem gera nýja listsköpun mögulega. Ef stjórnvöld vilja að íslensk myndlist blómstri þurfa þau að tryggja listafólki rými til að vinna, þróast og horfa fram á veginn. Langtíma stuðningur við vinnuaðstöðu er grunnfjárfesting í því menningarlífi sem við viljum eiga og státum okkur svo oft af.

Höfundur er formaður Sambands íslenskra myndlistarmanna.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page