top of page

Masha leiðir gesti um sýningu Pussy Riot - sýning framlengd

508A4884.JPG

fimmtudagur, 19. janúar 2023

Masha leiðir gesti um sýningu Pussy Riot - sýning framlengd

Vegna mikillar aðsóknar að sýningunni Flauelshryðjuverk - Rússland Pussy Riot í Kling & Bang hefur sýningin verið framlengd til 29. janúar.

Laugardaginn 21. janúar kl. 15:00 og fimmtudaginn 26. janúar kl. 20:00 mun höfundur sýningarinnar, Maria Alyokhina í Pussy Riot leiða gesti um sýninguna. Þetta er einstakt tækifæri til að heyra frásögn Mariu (Möshu) um gjörninga Pussy Riot og baráttu þeirra fyrir frelsi og réttlæti.
Leiðsagnirnar fara fram á ensku.

Kling & Bang er opið mið-sun kl. 12-18. Opið er til kl. 21:00 fimmtudaginn 26. janúar, á fimmtudaginn langa. Aðgangur er ókeypis.

Sýningin er í samstarfi við TBA21 Thyssen-Bornemisza Art Contemporary.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page