Margrét Jónsdóttir: LÍFSBLÓMIÐ

þriðjudagur, 17. nóvember 2026
Margrét Jónsdóttir: LÍFSBLÓMIÐ
SÍM Gallery, Opnun laugardaginn 21. nóvember kl 15:00 - 18:00
Sýningin stendur yfir 21.11 - 08.12 2026
Margrét er fædd í Reykjavík 1953 og starfar að list sinni í Frakklandi og Íslandi. Hún hefur á rúmum fimmtíu ára ferli haldið yfir sextíu einkasýningar í Reykjavík og nágrenni. Margrét ólst upp á vinnustofu og verkstæði bræðranna Jóns Benediktssonar (1916– 2003) og Guðmundar Benediktssonar (1920 – 2000) myndhöggvara og hönnuði á Laufásveginum svo myndlistin hefur alla tíð verið hluti af lífi Margrétar.
Verkin á sýningunni hafa verið í vinnslu frá 2024 og eru unnin út frá frumum og vírusum og því ósýnilega í tilverunni og tengjast ómeðvitað eldri verkum, allt frá 1976. Sjá má hluta af ferlinu í bók sem gefin er út í tilefni af sýningunni. Kafli um Margréti er í bókinni AKVARELL Í NORDEN eftir Anitu Midbjer sem var gefin út á þessu ári. Anita fór um öll Norðurlöndin og heimsótti listamenn á vinnustofum þeirra og ræddi um verk þeirra og vatnslitatæknina. Bókin verður til sýnis á sýningunni meðan sýningin stendur.
Margrét hefur tekið þátt í samsýningum á Íslandi, Evrópu, Bandaríkjunum, Kanada, Norðurlöndunum, auk einkasýninga í helstu listasöfnum og sýningarýmum á Íslandi. Margrét var einn af stofnendum og eigandi að Gallery Suðurgötu 7 sem var mikilvæg miðstöð í þróun framlínumyndlistar á Íslandi og starfaði 1977 til 1981.
Margrét var valin á sýninguna Ólga sem var á Kjarvalsstöðum 2025. Ólga var samsýning níu kvenna sem sýndu afgerandi hlutverk kvenna í mótun íslenskrar listasenu á miklum umbreytingatímum áttund og níunda áratugs liðinnar aldar.
Nám
1970-1974 Myndlista-og handíðaskóli Íslands Reykjavík Ísland. Frjáls myndlist og grafík.
1974-1976 St Martin’s School of Art London. Advanced Post Graduate Printmaking.
1982-1984 Myndlista-og handíðaskóli Íslands Grafísk hönnun.
1998 Kennaraháskóli Íslands Reykjavík. Kennarapróf.
1999-2000 Kennaraháskóli Íslands Tölvu og upplýsingatækni, framhaldsdeild.
Opið til 18 alla daga og föstudaga og um helgar opið frá 12 til 18
