top of page

Margrét Jónsdóttir: Klifun

508A4884.JPG

mánudagur, 16. febrúar 2026

Margrét Jónsdóttir: Klifun

Listasalur Mosfellsbæjar

Sýningartímabil: 14.02 - 13.03. 2026

Á sýningunni sýnir Margrét Jónsdóttir verk unnin með vatnslit á pappír. Verkin eru máluð á ólíkum tímum þar sem hvert verk er hluti af heild. Endurtekning myndaraða tengir verkin í sameiginlegri hreyfingu sem endurspeglar lífið sjálft, óreiða og sundrung leiðir aftur að byrjunarreit.

Undanfarin ár hefur Margrét unnið markvisst að tilraunum með pigment, eggtemperu og vatnsliti í samspili við önnur efni. Hún hefur jafnframt nýtt liðveislu náttúrunnar í sköpun sinni, þar sem vatn, rotnun og mygla verða hluti af myndun verka sem unnin eru í náttúrunni. Þannig verður ferli tímans, umbreyting og tilviljun hluti af listrænu tungumáli listakonunnar.

Margrét starfar að list sinni bæði í Frakklandi og á Íslandi og hefur verið virk sem myndlistarkona í yfir 50 ár. Hún útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands með diplóma í grafík/listmálun og grafískri hönnun, lauk framhaldsnámi við Central Saint Martins College of Art í London ásamt diplómagráðu frá Kennaraháskóla Íslands.

Samhliða eigin listsköpun hefur Margrét sinnt kennslu í yfir 30 ár.

Hlekkur á viðburð: https://fb.me/e/45zTsmYla

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page