top of page

Margrét E.Laxness: Himininn yfir jöklinum í Hannesarholti

508A4884.JPG

fimmtudagur, 19. október 2023

Margrét E.Laxness: Himininn yfir jöklinum í Hannesarholti

Margrét E.Laxness opnar málverkasýningu sína "Himininn yfir jöklinum" laugardaginn 14.október kl.14.

Á sýningunni sýnir Margrét E. Laxness ný verk unnin í akrýl á striga. Í verkunum birtist landslag, órætt en þó kunnuglegt, við könnumst við víðátturnar, sandana og jökulinn en getum þó ekki nefnt staðinn, yfir sveima skýin í litagleði og krafti og tjá andrúmsloft, hugarástand – ógn eða kyrrð, óveður eða veðurblíðu. Leikurinn með liti og kröftugar pensilstrokur myndar andstæður og tjáir hugarástand listamannsins og tilfinningar andspænis náttúrunni; einskonar náttúruljóð sem þenur mörk hins raunsæja og þekkta.

Margrét E. Laxness nam myndlist við Myndlista- og Handíðaskóla Íslands, í Textíldeild og Nýlistadeild, stundaði og framhaldsnám í málun við Accademia di Belle Arte í Róm. Margrét hefur haldið einkasýningar og einnig tekið þátt í samsýningum á Íslandi og á Ítalíu þar sem að hún hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir verk sín á samsýningu 2023 á vegum Art Space Milano í HubArt Gallery í Mílanó.

Sýningin er sölusýning og stendur til 1.nóvember. Hún er opin á opnunartíma Hannesarholts, frá 11.30 -16.00 alla daga nema sunnudaga og mánudaga.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page