Margot Gamm: Hlýja og handverk - yfirltissýning

fimmtudagur, 23. apríl 2026
Margot Gamm: Hlýja og handverk - yfirltissýning
Verið hjartanlega velkomin á opnun yfirlitssyningar á sköpunarverkum Margotar Gamm í Gömlubúð á Höfn í Hornafirði á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl, klukkan 17:00.
Boðið verður upp á kaffiveitingar og öll eru velkomin.
Margot Gamm (1931 – 2007) auðgaði menningarlíf Hornafjarðar með listfengi sínu við sköpun verka sem hún vann með margvíslegum aðferðum, svo og við myndmenntakennslu, og hafði sterk áhrif á fegurðarskyn og sköpunarfærni heimafólks.
Þessari fyrstu yfirlitssýningu á verkum Margotar er ætlað að veita innsýn inn í fjölbreytt og vandað handverk hennar, listgripi sem spanna tímabilið frá því hugmyndaauðgi hennar og handverksfærni fann sér farvegi í gerð litríkra muna, til þeirra sem hún skapaði fram til síðasta dags.
Listmunirnir á sýningunni eru allir í eigu afkomenda hennar, barna og barnabarna, og er fjölskyldunni allri þakkað fyrir verkalánið og stuðning við að varpa upp mynd af listfengi þessarar einstöku konu.
Margot fæddist og ólst upp í Hamborg í Þýskalandi og þar upplifði hún á mótunarárum sínum hörmungar síðari heimsstyrjaldarinnar. Árið 1949, þegar hún var sautján ára gömul, fluttist hún til Íslands og við tók nýtt líf við aðstæður sem voru gjörólíkar þeim sem hún þekkti.
Smám saman þróaði Margot með sér djúpan skilning á efnum, litum og handverki og bera verk hennar með sér næmni fyrir áferð og formi, þar sem hefðbundnar aðferðir mæta persónulegri nálgun. Hún vann með fjölbreytt efni og miðla sem hún kynntist við að sækja margvísleg námskeið.
Á Íslandi lærði hún leðurvinnslu, málun á gler-, tré og léreft sem og prjóna- og saumaskap en í framhaldinu fór hún að sækja námskeið í Þýskalandi. Þar einbeitti hún sér fyrst í stað að málun á batík en síðan að silkimálun og varð vinna með silki fljótlega eftirlætisiðja Margotar. Þekkingu sína færði hún heim í Hornafjörð og lagaði að íslensku samhengi, bæði í eigin verkum og í kennslu.
Eftir þáttaskil í lífinu við ótímabært andlát eiginmanns síns, Skírnis Hákonarsonar (1911-1979), snéri Margot sér í auknum mæli að kennslu og miðlun. Hún kenndi handmennt og þýsku í grunnskólum í Hornafirði og hafði djúpstæð áhrif á fjölda nemenda. Í kennslunni lagði hún áherslu á sjálfstæða hugsun, hugrekki í sköpun og virðingu fyrir handverki sem lifandi þekkingu. Nemendur hennar lýsa henni sem krefjandi en hlýjum leiðbeinanda sem hvatti þau til að finna sína eigin rödd.
Um sérstakt lífshlaup Margotar Gamm má lesa í nýlega útkominni bók, sem rituð er af Karli Skírnissyni syni hennar og byggir bókin að miklu leyti á hennar eigin minningaskrifum og sendibréfum hennar til ættingja og vina.
Sýningin varpar ljósi á skapandi lífssýn, sem einkenndi líf Margotar; leit hennar að nýjum leiðum í handverki og trú á gildi þess að skapa með höndunum. Verkin sem hér eru sýnd bera þar glöggt vitni um.
Sýningarstjóri er Birta Guðjónsdóttir.
Sýningin er haldin á vegum Svavarssafns og Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar.
Sérstakar þakkir eru færðar til afkomenda Margotar Gamm, fyrir að lána verk til sýningarinnar og fyrir allan stuðning.
Sýningin er studd af Safnasjóði Safnaráðs.
Boðið verður upp á leiðsagnir og listasmiðjur í tengslum við sýninguna á sýningartímanum.
Sýningin verður opin sumarið 2026.
Gamlabúð er opin daglega klukkan 14:00 – 20:00.
Öll eru velkomin og aðgangur er ókeypis.
Gamlabúð
Heppuvegur 1, 780 Höfn
https://mmh.hornafjordur.is
listasafn@hornafjordur.is
