Mótsögnin í málverkinu í Gallerí Gróttu
fimmtudagur, 17. október 2024
Mótsögnin í málverkinu í Gallerí Gróttu
Jón B. K. Ransu myndlistarmaður opnar sýningu sína Mótsögnin í málverkinu sem samanstendur af tveimur verkum Röðun og Djöggl sem eiga það sameiginlegt að snúast um málverk sem leita út fyrir rammann. Röðun og Djöggl snerta þannig takmörk þess sem er fyrir innan og utan rammann, sem eru, á einhverjum skilum, samtvinnuð.
Ransu er myndlistarmaður menntaður í Hollandi 1990-1995 og starfar einnig sem fræðimaður. Hann er höfundur þriggja bóka um samtímalist, og var meðhöfundur bókanna Valtýr Pétursson í Listasafni Íslands og Gerður: Meistari málms og glers í útgáfu Listasafns Kópavogs.
Ransu hefur unnið sem sýningarstjóri að sýningum fyrir listasöfn á Íslandi og var einn af sýningarstjórum tvíæringsins Momentum 9: Alienation í Moss í Noregi árið 2017.
Sýningin er opin mán-fim kl. 10-18:30, föstudaga kl. 10-17 og laugardaga kl. 11-14
Síðasti sýningardagur er 9. nóvember 2024.