Málþing um styrkjaumhverfi listasafna
fimmtudagur, 14. nóvember 2024
Málþing um styrkjaumhverfi listasafna
Samtök listasafna á Íslandi efna til málþings um styrkjaumhverfi listasafna á Íslandi, fimmtudaginn 21. nóvember kl. 13—17, í fjölnotasal Listasafns Reykjavíkur, Hafnarhúsi.
Markmið málþingsins er að draga fram mynd af þeim innlendu samkeppnissjóðum sem söfnin og þeirra helstu samstarfsaðilar geta sótt í og skoða með hliðsjón af starfsumhverfinu, helstu skyldum safna og sérstæði einstakra safna – en söfnin eru jafn ólík og þau eru mörg. Skoðað verður hvort og hvernig markmið safnanna fara saman eða skarast á við markmið þeirra sjóða sem sótt er í og rýnt í þá grunnþætti sem oft reynist erfitt að fjármagna. Dagskráin byggist upp af stuttum örerindum þar sem ólík sjónarmið mismunandi félaga og hagsmunaaðila verða dregin fram, og lengri framsögum þar sem veitt verður innsýn í styrkjaumhverfi nágrannalanda okkar. Þá verða pallborðsumræður þar sem stefnt er að því að ræða styrkjakerfið á breiðum grunni, fá fram athugasemdir og vangaveltur um það sem gagnast starfsemi safna og skoða hverju megi hugsanlega breyta og bæta.
Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra opnar málþingið og
Aldís Arnardóttir, formaður Samtaka listasafna á Íslandi, flytur inngangsávarp.
Flutt verða mörg stutt innlegg, m.a. frá Landshlutasamtökum – Sigursteinn Sigurðsson, Reykjavíkurborg – Arnfríður S. Valdimarsdóttir, SÍM - Sambandi íslenskra myndlistarmanna – Hlynur Helgason, Ísafjarðarbæ – Gylfi Ólafsson, Myndlistarráði – Ásdís Spanó, Listasöfnunum – Helga Þórsdóttir, Safnaráði – Þóra Ólafsdóttir, Menningarmálaráðuneytinu – Hildur Jörundsdóttir, einkageiranum – Börkur Arnarson og Myndlistarmiðstöð – Auður Jörundsdóttir.
Framsöguerindi koma frá Ny Carlsbergfondet í Danmörku, Arts and Culture Norway og Mondriaan Foundation í Hollandi.
Í pallborðsumræðum verða m.a. teknar fyrir spurningarnar: Hverju og hverjum þjónar núverandi styrkjakerfi helst? Hverjar eru helstu áskoranir og tækifæri? Hvað getum við gert betur?
Hluti málþingsins mun fara fram á ensku.
Málþingsstjóri er Erling Jóhannesson fráfarandi formaður BÍL - Bandalags íslenskra listamanna.
Boðið verður uppá léttar veitingar og spjall að formlegri dagskrá lokinni.
Hægt verður að fylgjast með dagskránni í streymi.
Málþingið nýtur stuðnings frá Safnaráði.