top of page

Málþing um gildi nemendarannsókna

508A4884.JPG

fimmtudagur, 13. júní 2024

Málþing um gildi nemendarannsókna

Rannsóknarsetur skapandi greina stendur fyrir málþingi um rannsóknir á atvinnulífi menningar og skapandi greina og hvernig rannsóknaverkefni háskólanema geta nýst í þeim efnum. Dregið verður fram hagnýtingargildi nemendarannsókna, tengsl og aðgengi nemenda að fyrirtækjum og stofnunum, hugmyndir að verkefnum ræddar og styrktækifæri.

Lilja Björk Haraldsdóttir kynnir meistaraverkefni sitt um rannsóknir á áhorfendaþróun innan sviðslistastofnana á Íslandi og Júlíus Jóhannesson kynnir rannsókn sína um dreifingu og móttöku íslenskra kvikmynda á alþjóðamarkaði. Lilja Björk er að ljúka MA í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst og Júlíus MA í fjölmiðla- og boðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Þá heldur Arndís Vilhjálmsdóttir rannsóknastjóri hjá Hagstofu Íslands erindi um aðkomu nemenda að verkefnum hjá stofnuninni.

Auk kynninganna fara fram pallborðsumræður um viðfangsefnið þar sem áheyrendur njóta góðs af framlagi fjölbreytts hóps. Anna Hildur Hildibrandsdóttir stýrir málþinginu.

Málþingið fer fram þann 18. júní nk. í nýjum húsakynnum Tónlistarmiðstöðvar að Austurstræti 5, kl. 13:00-15:30. Streymt verður frá viðburðinum og eru þátttakendur beðnir um að skrá sig og tilgreina hvort mætt verði á staðinn eða á streymi. Hægt er að nálgast dagskrá og skráningasíðu viðburðarins á rssg.is/malthing-juni24

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page