top of page

Málþing um fyrsta útilistaverkið á Íslandi

508A4884.JPG

fimmtudagur, 8. ágúst 2024

Málþing um fyrsta útilistaverkið á Íslandi

Málþing „Eftir sinni mynd“ -Þegar Danir gáfu Íslendingum Thorvaldsen 1874 Sunnudag 11. ágúst kl. 13.00 í Hafnarhúsi.

Málþing í tilefni þess að árið 2024 eru liðin 150 ár frá því að Kaupmannahafnarborg gaf Íslendingum styttuna af Bertel Thorvaldsen í tilefni af 1000 ára afmæli þjóðarinnar. Verkið var fyrsta útilistaverkið reist á Íslandi og markaði tímamót í menningarsögu þjóðar og skipulagi Reykjavíkur. Árið 1874 var einnig tímamótaár fyrir þær sakir að þá kom Danakonungur í fyrstu heimsóknina til landsins og þjóðin fékk sína fyrstu stjórnarskrá.

Dagskrá:
13:00 Ólöf Kristín Sigurðardóttir safnstjóri Listasafns Reykjavíkur býður gesti velkomna.
13:05 Málþingið sett
13:10 Kira Kofoed, Museum inspector, Thorvaldsens Museum: Between art and politics – on the understated cosmopolitan rebel Bertel Thorvaldsen (1770-1844).
13:30 Eiríkur G. Guðmundsson, sagnfræðingur og fyrrverandi þjóðskjalavörður: ,,Enga gjöf gátu Danir betur valið Íslandi".
14:00 Hlé
14:20 Jón Karl Helgason, prófessor í Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands: Thorvaldsen sem þjóðardýrlingur.
14:40 AlmaDís Kristinsdóttir, safnstjóri Listasafns Einars Jónssonar: Listamannasöfn myndhöggvaranna Einars Jónssonar og Thorvaldsen
15:00 Sigurður Trausti Traustason, deildarstjóri safneignar og rannsókna Listasafni Reykjavíkur: Þróun listar í almannarými Reykjavíkurborgar.
15:20 Pallborð
15:40 Móttaka og léttar veitingar

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page