top of page

Louise Harris: Íslensk kona býr til list / Icelandic Woman Makes Art

508A4884.JPG

miðvikudagur, 3. júní 2026

Louise Harris: Íslensk kona býr til list / Icelandic Woman Makes Art

SÍM Gallery
Hafnarstræti 16, Reykjavík

07.06 - 23.06.2026
Opnun laugardaginn 6. júní kl. 16.00 - 18.00

Louise Harris fæddist á helv**** enda veraldar (á Isle of Sheppey) og stundaði nám í Oxford og Goldsmiths. Hún vinnur fyrst og fremst sem listmálari og flutti til Reykjavíkur með fjölskyldu sinni árið 2005. Árið 2026 hlaut hún íslenskan ríkisborgararétt.

Ég stundaði grunnnám í Canterbury School of Art, í myndlistardeildinni. Ég var eina stelpan þar og það kom mér því ekki á óvart þegar ég kom til Oxford að þar var myndlistardeildin yfirfull af strákum sem máluðu á striga sem voru of stórir til að komast út um dyrnar á vinnustofunum. Ég gerði innsetningu með handmáluðu veggfóðri og hengdi upp þrjátíu og sex lítil olíumálverk, öll tólf tommur á kant.

Í Reading School of Art ákvað ég að halda áfram með anatómíu rannsóknir. Þetta hræddi prófessorana og þeir yrtu ekki á mig, svo ég hætti og fór í Goldsmiths háskólann. Þar voru nemendurnir bugaðir af ótta, hræddir allan tímann. Ég byrjaði að vinna með fjölbreyttari miðla í tilraun til að halda mínum eigin ótta í skefjum. Ég bjó til stórt diskó með litlum töskum og blikkandi ljósum sem virtist skemmtilegra og minna ógnvekjandi. Eftir nokkur ár á kúl vinnustofunni minni í Hoxton, þar sem ég málaði stórar, stórar vatnslitamyndir, flutti ég til Íslands, vegna ullarinnar, og byrjaði að þæfa allt, og notaði svo leður, notaða jakka, til að búa til töskur. Leðrið minnir mig á dauðann, eftir að missa foreldra mína vöknuðu upp hugsanir um eigin dauða. Eftir tuttugu ár í Reykjavík fékk ég ríkisborgararétt, það gæti breytt hlutunum …

//

Louise Harris was born at The End of the F*****g World (on the Isle of Sheppey) and educated in Oxford and Goldsmiths,she works primarily as a painter and relocated to Reykjavik with her family in 2005. In 2026 she received Icelandic citizenship.

I studied Foundation at Canterbury School of Art, in the Fine Art Department I was the only girl so I was not surprised when I got to Oxford and found the painting department there dominated by boys making canvases too big to get out of the doors of the studios. I made an installation with hand painted wallpaper and hung thirty-six small oil paintings all twelve inches square.

At Reading School of Art I decided to continue my anatomy investigations. This scared the professors and they didn´t speak to me so I left and went to Goldsmiths. The students were all scared there, scared all the time, I started to work with a wider range of media in an attempt to keep my own fear at bay. I made a big disco with small bags and flashing lights which seemed more fun and less scary. After a few years in my cool Hoxton studio, painting big, big watercolours I moved to Iceland, for the wool, and started felting everything, and then using leather, discarded jackets to make bags. The leather feels like death, I lost my parents, that makes you think about your own death. After twenty years in Reykjavík I got citizenship, that might change things ...

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page