top of page

Logi Bjarnason : SVARTUR BLETTUR

508A4884.JPG

miðvikudagur, 23. september 2026

Logi Bjarnason : SVARTUR BLETTUR

Listasafninu á Akureyri Laugardaginn 26. september kl. 15
Salur 06 (svalir á 4. hæð)
Sýningin stendur yfir 26.09.2026 – 10.01.2026

Logi Bjarnason (f. 1978) lauk BA-námi frá Listaháskóla Íslands 2008 og MA-námi frá Städelschule í Þýskalandi 2012. Hann hefur sýnt verk sín við ýmis tækifæri, bæði á Íslandi og erlendis, og hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir myndlist sína.

Í listsköpun sinni fjallar hann um náttúru Íslands á óhlutbundinn hátt, ásamt því að flétta saman samfélagstengda þætti. Verk hans eru unnin í ýmsa miðla, ýmist tvívíð eða þrívíð, jafnvel hvort tveggja.

Verkið á svölunum setur fram nýja nálgun á skúlptúr þar sem mörk skynjunar og víddar færast til.

Skúlptúrinn er hluti af seríu stórra svartra steina, þar sem óhlutbundið formið vísar í ádeilu á samtíma okkar með sterka skírskotun í ástand heimsins á tímum stríðsátaka, þar sem getuleysi Vesturlanda gagnvart stríði í heiminum er algjört.

Hið angurværa svartnætti sem umlykur okkur virkar sem aðdráttarafl sem kallar á samveru og um leið er það líka könnun á lífsgæðum og rými.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page