Ljósmyndasafn Reykjavíkur: Ester Jóhannesdóttir sýnir í Skoti
miðvikudagur, 8. júní 2022
Ljósmyndasafn Reykjavíkur: Ester Jóhannesdóttir sýnir í Skoti
Ester Jóhannesdóttir sýnir í Skoti Ljósmyndasafns Reykjavíkur
Ljósrými – skuggarými er yfirskrift sýningar sem opnar í Skoti Ljósmyndasafns Reykjavíkur fimmtudaginn 9. júní kl. 17. Á sýningunni eru ljósmyndir eftir Ester Jóhannesdóttur.
Með aukinni náttúrulegri birtu verður ljósmyndun auðveldari og aðgengilegri og andstæður verða skýrari eftir því sem myrkrið verður minna. Athöfnin að ljósmynda eða mynda ljós á sér margar birtingarmyndir.
Sýningin byggir á yfirstandandi rannsókn Esterar á ljósmyndun í afmörkuðu rými. Hún leitast við að ljósmynda birtu og skugga í innviðum bygginga með náttúrulegri lýsingu, en einnig úti með rafmagnsljósi. Með því vill Ester skoða hvaða áhrif birtan/ljósið, náttúrulegt eða rafmagns, hefur á rýmið og myndina.
Ljósið er frumkraftur í náttúrunni og grundvöllur ljósmyndunar ásamt myrkrinu – því án þess væri ekkert ljós. Að búa í landi andstæðna þar sem birtumagnið er mikið á sumrin en af skornum skammti á veturna hefur gríðarleg áhrif á fólk.
Í myndunum leikur Ester sér að frumformunum með ljósinu og bilinu á milli þessara andstæðna. Við það verða til abstrakt form og skuggar verða greinilegri í afmörkuðum ramma myndflatarins þar sem hið ljóðræna er aldrei langt undan.
Sýningin veltur upp tilvistarlegum spurningum sem vakna út frá ljósi og formum í ljósmyndun ásamt því að velta fyrir sér hvernig sköpunarþráin tengist því hvernig mannkynið hefur þraukað á jörðinni.
Ester Jóhannesdóttir útskrifaðist með MFA gráðu frá University of Leeds árið 2010 og hefur fengist við listsköpun í yfir 30 ár.
Sýningin stendur yfir frá 9. júní til 16. ágúst 2022.