top of page

LITAREK - SIGURÐUR ÁRNI SIGURÐSSON

508A4884.JPG

miðvikudagur, 30. apríl 2025

LITAREK - SIGURÐUR ÁRNI SIGURÐSSON

Laugardaginn 3. mai kl. 15 opnar einkasýning Sigurðar Árna Sigurðssonar, Litarek, í Ásmundarsal. Sigurður Árni hefur í fjölda ára einbeitt sér að rýmisskynjun í myndlist sinni og skoðað hvernig uppbrot á hinni vanabundnu skynjun getur haft verkun langt út fyrir myndflötinn. Á einkasýningu sinni í Ásmundarsal heldur hann rannsókn sinni áfram og sýnir stórskala málverk og speglaverk.

Sigurður Árni Sigurðsson hefur starfað jöfnum höndum í Reykjavík og í Frakklandi frá því að hann lauk námi frá Institut des Hautes Études en Art Plastiques í París árið 1991. Hann hefur haldið tugi einkasýninga og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum. Verk eftir Sigurð Árna er að finna í öllum helstu listasöfnum á Íslandi sem og í opinberum söfnum og einkasöfnum víða í Evrópu og má þar nefna að nýlega eignaðist nútímalistasafnið Centre Pompidou í Paris verk eftir listamanninn. Sigurður Árni var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum á Ítalíu árið 1999 og þegar Reykjavík var menningarborg Evrópu árið 2000 var verk eftir hann valið sem táknmynd menningarársins. Árið 2020 var stór yfirlitssýning sett upp í Listasafni Reykjavíkur þar sem farið var yfir feril listamannsinns frá upphafi til dagsins í dag. Af stærri opinberum verkum eftir listamanninn má nefna útilistaverkið „Sólalda“ við Sultartangavirkjun, verkið „Samhengi” í Landsbanka Íslands í Reykjavík, glerverkið „Ljós í skugga” í dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri og Vegglistaverkið "Sól úr norðri" í Urriðaholti í Garðabæ auk þess sem útilistaverkið „L´Eloge de la Nature“ er staðsett í bænum Loupian í Suður-Frakklandi.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page