top of page

Listval á Granda: Portrett129 - Dóra Emilsdóttir og Kristín Gunnlaugsdóttir

508A4884.JPG

fimmtudagur, 15. september 2022

Listval á Granda: Portrett129 - Dóra Emilsdóttir og Kristín Gunnlaugsdóttir

Sýningin opnaði 2. september og stendur til 8. október. Þá verður opið á föstudögum og laugardögum frá 13-16 og eftir pöntun.

Á sýningunni Portrett129, sem nú stendur yfir í Listvali á Granda, sameinast þær Dóra Emilsdóttir og Kristín Gunnlaugsdóttir í listrænni samvinnu undir heitinu doubletrouble en báðar hafa þær unnið að myndlist frá námsárunum í MHÍ, þar sem vinátta þeirra hófst. Í upphafi 2020 eða byrjun covid, ákváðu þær að hefja samstarf í málun portrettmynda, þar sem ein byrjaði og hin tæki við. Báðar væru þær með þeim hætti höfundar verkanna. Doubletrouble kemur því ekki á óvart sem nafn á tvíeykinu þar sem léttleiki og húmor er einkennandi fyrir bæði vináttu og samstarf þessara vinkvenna. Gagnrýni og kröfur á listræna útkomu, án málamiðlana er sú sama hjá báðum og byggir á trausti áralangrar vináttu. Portrettin urðu alls 129.


UM LISTAMENNINA
Dóra Emilsdóttir
Dóra Emilsdóttir stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og einnig lauk hún MA námi við Gerrit Rietveld Academie í Hollandi. Verk hennar hafa auðkennst af samspili hins óræðna og hins hlutbundna í málverkinu. Ljóðræna birtist á mörkum, líkama og landslags, tabú þar sem allt er leyfilegt, glimmer, dúllur, bleikar blúndur, glitrandi ský. Smáatriði alheimsins og allt kemur saman í eina heild og jafnvel lítil atriði leika stóra rullu í frásögninni. Plexiverk/Primadonnur/verk á pappír eru meðal annars verk sem til eru víðs vegar í opinberri eigu og einkaeign fólks. Dóra hefur haldið ótal einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis. Hún er meðlimur í Sambandi íslenskra myndlistarmanna (SÍM).
Kristín Gunnlaugsdóttir
Kristín Gunnlaugsdóttir (f. 1963) hóf snemma myndlistarnám í Myndlistaskólanum á Akureyri eða 1975 með námskeiðum og lauk þaðan fornámi 1986. Hún lauk útskrifaðist frá Myndlista- og Handíðaskólanum 1987. Á árunum 1987 – 1988 dvaldi hún í klaustri í Róm og lærði þar íkonagerð og málun. Árið 1995 útskrifaðist hún með láði frá Accademia di belle Arti í Flórens. Í myndlist sinni vinnur Kristín aðallega málverk, veggteppi með útsaumi, teikningar, eggtemperur með blaðgulli og vatnslitamyndir. Kristín hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í listviðburðum heima sem erlendis. Hún hefur einnig kennt myndlist við Myndlistaskólann í Reykjavík, Listaháskólann og Einar Granum Kunstskole Oslo. Kristínu var veitt íslenska fálkaorðan fyrir framlag sitt til myndlistar 2018.


Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page