top of page

Listval á Granda: Iðkun/Practice - Nína Óskarsdóttir

508A4884.JPG

miðvikudagur, 4. maí 2022

Listval á Granda: Iðkun/Practice - Nína Óskarsdóttir

EINKASÝNING NÍNU ÓSKARSDÓTTIR IÐKUN / PRACTICE
OPNAR Á HÖNNUNARMARS Í LISTVAL, GRANDA.

6. – 22. maí 2022
@ Listval, Granda, Hólmaslóð 6

Á sýningunni Iðkun / Practice sýnir Nína Óskarsdóttir röð nýrra skúlptúra þar sem hún veltir fyrir sér hugmyndum um heilagleika í menningarlegum skilningi. Hvernig er heimili okkar heilagt ef það er það yfirhöfuð og hvaða merkingu hefur heilagleiki fyrir okkur í nútíma samfélagi? Skúlptúrana vinnur Nína úr keramík og er hver skúlptúr handmótaður og unninn út frá þeirri hönnun og fagurfræði sem birtist í trúarlegri iðkun. Handverkið er þannig tvinnað saman við hugmyndir um okkar menningarlegan uppruna og trú, hinn efnislega heim og þá iðkun sem sjálft handverkið felur í sér. En hvers konar iðkun, hvort sem hún snýr að okkar eigin heimili, listsköpun eða trú krefst staðfestu og alúð og það mun sýningin jafnframt kristallast um.

UM LISTAMANNINN

Nína Óskarsdóttir útskrifaðist með MA gráðu í myndlist árið 2020 frá Listaháskóla Íslands þar sem hún kláraði einnig BA nám sitt árið 2014. Nína vinnur aðallega með skúlptúr og innsetningar og notfærir sér þá efni á borð við keramík, textíl, ljós og hverfulan efnivið, s.s. vatn, eld og matvæli. Verk hennar einkennast af efniskennd og hugmyndum um menningarlegan uppruna okkar og taka oft á sig trúarlegan blæ.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page