top of page

Listval: Jólasýning í Hörpu

508A4884.JPG

laugardagur, 3. desember 2022

Listval: Jólasýning í Hörpu

Jólasýning Listvals í Hörpu opnar laugardaginn 3. desember


Næstkomandi laugardag kl. 12-17 opnar jólasýning Listvals í Hörpu. Á sýningunni má finna yfir 300 verk eftir um 100 listamenn í fremstu röð. Þá fagnar Listval einnig eins árs veru í Hörpu en markmið Listvals hefur frá upphafi verið að auðvelda fólki að fjárfesta í myndlist og gera hana aðgengilegri. Á sama tíma og sýningin opnar í gallerínu verða öll verkin einnig til sýnis á heimasíðu Listvals. „Heimasíða Listvals er stór þáttur í því að auka aðgengi að myndlist en þar getur fólk setið heima, skoðað úrvalið og mátað verkin með sérstakri “skoða í eigin rými” virkni sem hefur slegið í gegn“ segir Helga Björg Kjerúlf. Frá opnun Listvals í Hörpu hefur Listval sýnt og selt samtímamyndlist eftir tugi listamanna. „Við finnum fyrir mikilli ánægju meðal almennings á starfseminni og aðsóknin endurspeglar það“ segir Elísabet Alma Svendsen. Sýningin stendur til 7. janúar en opið verður á virkum dögum frá 12-18 og milli 12-16 um helgar.

Hægt er að fylgjast með Listval á Instagram, instagram.com/listval_, og skoða verk á listval.is.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page