ListaVestrið - Menningarhátíð á Flateyri

fimmtudagur, 9. júlí 2026
ListaVestrið - Menningarhátíð á Flateyri
ListaVestrið, menningarhátíð á Flateyri, fer í ár fram dagana 11. – 19. júlí 2026 og verður þá haldin í fimmta sinn. Opnun hátíðarinnar fer fram 11. júlí kl. 15.00 í Tankinum á Sólbakka. Alls taka 15 listamenn þátt í ListaVestrinu í ár.
ListaVestrið hefur fest sig í sessi sem metnaðarfullur vettvangur fyrir samtímalist og menningarviðburði á Vestfjörðum. ListaVestrið sameinar starfsemi þriggja sýningarrýma á Flateyri, Gallerísins Undir brúnni, Gömlu Slökkvistöðvarinnar og Tanksins á Sólbakka, sem öll hafa undanfarin ár staðið fyrir fjölbreyttum listviðburðum, sýningum og opnunum sem hafa laðað að sífellt fleiri gesti.
Á aðaldagskrá ListaVestursins í sumar verða fjórar myndlistarsýningar. Í Gömlu Slökkvistöðinni munu Jón Óskar og Hulda Hákon sýna verk sín. Undir brúnni á Sólbakka mun Krassasig, Kristinn Arnar Sigurðsson, gera staðbundna innsetningu. Í Tankinum sýna Ísfirðingarnir og systkinin Gunnar og Rannveig Jónsbörn verk sín og föður þeirra, Jóns heitins Sigurpálssonar. Á efri hæð Tanksins sýnir Einar Örn Benediktsson tón- og myndlistarmaður auk þess sem Jóel Pálsson saxafónleikari flytur hljóðverk við opnun hátíðarinnar.
Sem fyrr verða jafnframt fjöldi annarra innsetninga og sýninga settar upp víða á Flateyri, sem utandagskrár “off-venue” sýningar. Þá verður gestum hátíðarinnar boðið að spreyta sig á að mála fjallið Þorfinn sem stendur handan fjarðar. ListaVestrið heldur einnig listasmiðju fyrir börn dagana 14.–17. júlí í Samkomuhúsinu á Flateyri, undir leiðsögn Einars Viðars Thoroddsen og Fannars Skarphéðinssonar.
Nánari upplýsingar um dagskrá ListaVestursins í ár má finna á samfélagsmiðlum og vef hátíðarinnar.
Helstu styrktaraðilar ListaVestursins í ár eru Myndlistarsjóður, Landsbankinn og Barnamenningarsjóður en hátíðin nýtur einnig stuðnings frá Ísafjarðarbæ, Styrktarsjóði hafna Ísafjarðarbæjar og Orkubúi Vestfjarða.
