top of page

Listaverkstæði í Krakkaklúbbnum Krumma

508A4884.JPG

fimmtudagur, 16. mars 2023

Listaverkstæði í Krakkaklúbbnum Krumma

Krakkaklúbburinn Krummi, Staðsetning: Fríkirkjuvegur 7,18. mars kl. 14 – 16
Listaverkstæði
Komið og skapið í fallegu umhverfi safnsins, alls kyns blandaður efniviður í boði, málning á striga, vatnslitir, fundinn efniviður og frumlegar aðferðir í listsköpun þar sem listaverkin á sýningum safnsins veita innblástur.

Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um listaverkin í safneign Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi.
Krakkaklúbburinn Krummi er fyrir börn á öllum aldri!

Með krakkaklúbbnum vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page