top of page

Listasalur Mosfellsbæjar: Í stærra samhengi - Eygló Harðardóttir

508A4884.JPG

mánudagur, 17. október 2022

Listasalur Mosfellsbæjar: Í stærra samhengi - Eygló Harðardóttir

Eygló Harðardóttir opnar sýninguna Í stærra samhengi í Listasal Mosfellsbæjar föstudaginn 14.
október kl. 16-18. Eygló hefur verið áberandi í íslensku myndlistarlífi enda starfað sem
myndlistarmaður um áratuga skeið, haldið ótal sýningar og tekið þátt í fjölbreyttum listrænum
verkefnum.
Verk Eyglóar á sýningunni Í stærra samhengi eru hluti af persónulegu rannsóknarferli sem hún hefur
unnið með um langt skeið og er ekki lokið. Efniviðurinn skiptir þar höfuðmáli, hann leitar til
listamannsins frekar en öfugt og kemur með innblástur. Inntak sýningarinnar er hvernig bókverk hafa
áhrif á gerð listaverka og listaverk áhrif á gerð bókverka. Verkin lifa bæði í heimi bókverka og
myndlistar og eru hugsuð til að skynja frekar en skilja.
Listasalur Mosfellsbæjar er staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar, Þverholti 2. Opið er kl. 9-18
virka daga og kl. 12-16 á laugardögum. Síðasti sýningardagur er 11. nóvember. Ókeypis inn og öll
velkomin.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page