top of page

Listasafnið á Akureyri: Nánd/Embrace - Samsýning

508A4884.JPG

föstudagur, 28. janúar 2022

Listasafnið á Akureyri: Nánd/Embrace - Samsýning

Laugardaginn 29. janúar kl. 12-17 verður fyrsta sýning ársins, Nánd / Embrace, opnuð í Listasafninu á Akureyri. Á sýningunni er athyglinni beint að innri rökfærslum listmálunar sem eru staðsettar, skuldbundnar og innbyggðar. Á sýningunni fellur allt saman í þeim tilgangi að skapa og miðla stöðum og aðstæðum fyrir málverk til að vera og verða – að anda inn og anda út, með áhorfandanum og staðnum. Markmiðið er að yfirgefa hugmyndina um fjarlægt hlutleysi og færa sig nær þátttökureynslu – hinni krefjandi en ánægjulegu leið frá aðskilnaði til nándar, frá fjarveru til þátttöku.

„Sýningin mun bjóða þér að vera með,“ segir sýningarstjórinn Mika Hannula. „Breytum sjónarhorninu og látum koma okkur á óvart. Einbeitum okkur að því sem er einstakt, sem hvetur okkur til að njóta tilrauna sem færa okkur á áður óþekkta staði. Nánd / Embrace hvílir í ánægjunni við að skapa og miðla stöðum og aðstæðum til að vera með málverkum.“

Þátttakendur eru: Birgir Snæbjörn Birgisson, Emil Holmer, Heidi Lampenius, Onya McCausland, Miikka Vaskola, Þórdís Erla Zoëga.
Sýningarstjóri: Mika Hannula.
Meðfylgjandi mynd: Birgir Snæbjörn Birgisson, Frumburðurinn / Firstborn, 2021.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page