top of page

Listasafnið á Akureyri: Mín leið - Útskriftarsýning VMA

508A4884.JPG

föstudagur, 18. nóvember 2022

Listasafnið á Akureyri: Mín leið - Útskriftarsýning VMA

Laugardaginn 19. nóvember kl. 15 verður útskriftarsýning listnáms- og hönnunarbrautar VMA, Mín leið, opnuð. Sýningin stendur til 27. nóvember.
Sýningar á lokaverkefnum nemenda hafa lengi verið fastur liður í starfsemi listnáms- og hönnunarbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri. Sýningarnar eru tvær yfir árið, annars vegar í lok vorannar og hins vegar í lok haustannar. Þetta er sjöunda árið í röð sem þær eru haldnar í samstarfi við Listasafnið á Akureyri.
Við undirbúning slíkra sýninga velja nemendur sér verkefni eftir áhugasviði þar sem þeim gefst tækifæri til að kynna sér nýja miðla eða dýpka skilning sinn á þeim sem þeir hafa áður kynnst. Að baki verkanna liggur hugmynda- og rannsóknarvinna og leita nemendur víða fanga í eigin sköpunarferli, allt eftir því hvað hentar hverri hugmynd og þeim miðli sem unnið er með.

Samhliða öðru námi fá nemendur eina önn til að vinna að lokaverkefnum sínum og
uppsetningu sýningar í samtali og samvinnu við leiðsagnarkennara og samnemendur þar sem
frumkvæði, hugmyndaauðgi og öguð vinnubrögð eru lögð til grundvallar.
Nemendur: Eyrún Arna Ingólfsdóttir, Júlía Jökulrós Sveinsdóttir, Marcus Emil Sigurbjörnsson, Natalía Sól Jóhannsdóttir.
Meðfylgjandi mynd: Eyrún Arna Ingólfsdóttir.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page